U19 ára landslið kvenna á möguleika á að tryggja farseðilinn á Evrópumótið í sumar er það mætir Serbíu í lokaleiknum í seinni umferðinni í undankeppnini í dag.
Ísland og Finnland eru í efstu sætunum með 4 stig fyrir lokaumferðina.
Íslenska liðið vann frækinn 3-2 sigur á Dönum um helgina og gæti markatala ráðið úrslitum.
Finnar mæta Dönum á meðan. Topplið riðilsins fer á Evrópumótið sem er spilað í Bosníu og Hersegóvínu frá 27. júní til 10. júlí í sumar.
Hægt er að horfa á leikinn með því að smella á tengilinn
Leikur dagsins:
10:00 Serbía-Ísland (Sport Center FA of Serbia)


