Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mið 15. apríl 2026 21:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Meistaradeildin: Madrídingar brjálaðir eftir magnaðan leik - Arsenal komst áfram
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Bayern Munchen er komið áfram í undanúrslit Meistaradeildarinnar eftir ótrúlegan leik gegn Real Madrid í Þýskalandi í kvöld. Bayern var 2-1 yfir í einvíginu eftir leikinn á Spáni.

Real Madrid jafnaði metin í einvíginu eftir aðeins 35 sekúndur þegar Manuel Neuer gerði sig sekan um slæm mistök. Hann var kominn vel út úr markinu og átti slæma sendingu beint á Arda Guler sem skoraði af löngu færi á opið markið.

Aðeins fimm mínútum síðar skoraði Aleksandar Pavlovic með skalla eftir hornspyrnu. Veislan hélt áfram og Guler skoraði annað mark Real Madrid með marki beint úr aukaspyrnu.

Harry Kane jafnaði metin en Kylian Mbappe kom Real Madrid yfir í þriðja sinn undir lok fyrri hálfleiks. Staðan var því jöfn í einvíginu þegar flautað var til leikhlés.

Mbappe var nálægt því að koma Real Madrid yfir í einvíginu eftir langa sendingu fram völlinn frá Trent Alexander-Arnold en Neuer varði frábærlega frá honum.

Real Madrid byrjaði seinni hálfleikinn betur og fékk góð tækifæri til að skora en Bayern komst betur inn í leikinn og fékk einnig góð tækifæri.

Þegar fjórar mínútur voru til loka venjulegs leiktíma fékk Eduardo Camavinga sitt annað gula spjald og þar með rautt. Þremur mínútum síðar skoraði Luis Diaz með skoti fyrir utan teiginn og Michael Olise innsiglaði sigurinn í blálokin eftir laglega takta.

Það sauð á leikmönnum Real Madrid í lokin og Arda Guler fékk meðal annars rautt spjald. Bayern mætir PSG í undanúrslitum.

Þá fékk Arsenal Sporting í heimsókn en Kai Havertz skoraði eina markið í fyrri leiknum undir lok leiksins.

Það var hrollur í Arsenal mönnum í fyrri hálfleiknum og Geny Catamo komst næst því að skora í fyrri hálfleik fyrir Sporting þegar hann átti fast skot í stöngina undir lokin.

Það var fátt um fína drætti í seinni hálfleik og leiknum lauk með markalausu jafntefli sem þýðir að Arsenal er komið í undanúrslitin annað árið í röð þar sem Atletico Madrid bíður.

Fyrri leikirnir í undanúrslitunum fara fram 28. og 29. apríl og seinni leikirnir 5. og 6. maí.

Arsenal 0 - 0 Sporting (1-0 samanlagt)

Bayern 4 - 3 Real Madrid (6-4 samanlagt)
0-1 Arda Guler ('1 )
1-1 Aleksandar Pavlovic ('6 )
1-2 Arda Guler ('29 )
2-2 Harry Kane ('38 )
2-3 Kylian Mbappe ('42 )
3-3 Luis Diaz ('89 )
4-3 Michael Olise ('90 )
Rautt spjald: Eduardo Camavinga, Real Madrid ('86)
Slapp
banner