Rogers opinn fyrir því að fara frá Villa - Leipzig setur verðmiða á Diomande - Grealish áfram hjá Everton?
Bestur í Mjólkurbikarnum - „Klúbbur sem á ekkert að vera í þessari deild“
Tap í uppbótartíma en Konni er stoltur
Fyrirliðinn Eiður Aron: Við ætlum að vinna þessa deild
Álitið - Hver verður markakóngur?
Besta spjallið - Horfðu á upphitunarþáttinn í mynd
Ian Jeffs: Veit ekki hverjar geta mætt á morgun
Guðni Eiríks: Sagði að ef hann myndi ekki taka ákvörðunina þá myndi ég gera það fyrir hann
Álitið - Hver verður efnilegastur?
Álitið - Hverjir verða meistarar og hver verður bestur?
Óskar Hrafn hefur ekki tíma fyrir gæðastjórann
Aron Einar: Það hefur aldrei vantað upp á hjá honum
Arnar vonsvikinn: Rosalega mikill klaufagangur
Gylfi: Jákvætt að þetta gerist ekki í undankeppni
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
   mán 15. júní 2015 22:12
Gunnar Birgisson
Rúnar Páll: Unnum sem lið í dag en ekki 11 einstaklingar
Það var þungu fargi létt af Rúnari í kvöld
Það var þungu fargi létt af Rúnari í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Páll Sigmundsson var kátur með sigur sinna manna í lautinni í kvöld þar sem Stjarnan unnu Fylki 0-2 í Pepsi deild karla. Stjarnan hafði tapað tveimur fótboltaleikjum í röð í deildinni fram að þessum leik.

„Þetta er gríðarlegur léttir fyrir okkur og þungu fargi af manni létt," sagði Rúnar í samtali við Fótbolta.net

Lestu um leikinn: Fylkir 0 -  2 Stjarnan

Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu og var það eitthvað sem við var að búast þar sem liðin eru að berjast á svipuðum stað í deildinni.
„Við reiknuðum alveg með því, við erum jöfn á stigum þannig það var alveg augljóst mál að liðið sem myndi vinna baráttuna á vellinum myndi fara með stigin heim."

„Fyrsta markið var svona hálf skrýtið af þeirra hálfu en Jón Arnar gerði feyki vel vil ég meina og skoraði flott mark. Markið hjá Halldóri var mjög vel gert hjá okkar mönnum. Vörnin var mjög öflug og við unnum sem lið í dag en ekki 11 einstaklingar inni á vellinum.

Gunnar Nielsen var fjarverandi hjá Stjörnunni í kvöld.
„Hann er bara í Færeyjum var að spila landsleik á laugardaginn og við gátum ekki fært leikinn."
Slapp
banner
banner