„Æðisleg tilfinning," sagði Úlfur Arnar þjálfari Fjölnis eftir sigur liðsins á Þór í Lengjudeildinni í kvöld.
Lestu um leikinn: Þór 1 - 4 Fjölnir
„Frábær sigur, er ótrúlega ánægður og stoltur af strákunum. Við gerðum þetta hrikalega vel, mjög erfiðar vallaraðstæður, mjög blautur völlur. Mér fannst við gera þetta helvíti vel í dag, afsakið orðbragðið."
Úlfur var ánægður með leik liðsins á erfiðum velli.
„Við vildum reyna spila okkar leik eins og við mögulega gætum en við vorum að passa okkur á vellinum. Við vorum skynsamir og fyrst og fremst að hafa góðar gætur á framherjaparinu hjá þeim."
Þórsarar áttu góðan kafla lengst af í fyrri hálfleik en Sigurjón Daði í marki Fjölnis sá til þess að þeir voru með eins marks forystu í hálfleik.
„Í seinni hálfleik var þetta aldrei spurning, mér fannst við gera þetta rosalega vel og sannfærandi," sagði Úlfur að lokum.






















