Ísak Bergmann Jóhannesson, leikmaður Norrköping, segir í hraðaspurningum í þættinum „Ungstirnin" að hann borði hafragraut og drekki rauðrófusafa fyrir alla leiki.
„Þetta er ógeðslegt. Þetta er eins og mold á bragðið," sagði Ísak um rauðrófusafann.
Ísak segir að rauðrófusafinn hjálpi til við að halda orku í leikjum.
„Pabbi og mamma komu mér í þetta. Þetta gefur vöðvunum meira súrefni og þú endist lengur þegar þú ert að spila."
„Ég er að hlaupa mest í leikjum með Norrköping og ég vil meina að það sé rauðrófusafinn," sagði Ísak léttur í bragði.
Hér að neðan má hlusta á þáttinn í heild.
Athugasemdir