City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 21:39
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Albert skoraði og lagði upp í fallbaráttuslag
Albert var heitur gegn Cremonese
Albert var heitur gegn Cremonese
Mynd: EPA
Cremonese 1 - 4 Fiorentina
0-1 Fabiano Parisi ('25 )
0-2 Roberto Piccoli ('32 )
0-3 Dodo ('49 )
1-3 David Okereke ('57 )
1-4 Albert Gudmundsson ('70 )

Albert Guðmundsson skoraði og lagði upp er Fiorentina vann 4-1 sigur á Cremonese í fallbaráttuslag í Seríu A á Ítalíu í kvöld.

Fiorentina var einu stigi fyrir ofan Cremonese fyrir leik kvöldsins og þurfti á sigri að halda til þess að fjarlægjast fallsæti.

Fabiano Parisi skoraði með marki af stuttu færi á 25. mínútu áður en Roberto Piccoli bætti við öðru sjö mínútum síðar eftir gott hlaup vinstra megin í teignum.

Brasilíski vængbakvörðurinn Dodo skoraði stórbrotið mark eftir einstaklingsframtak á 49. mínútu. Það var Albert sem átti sendinguna á Dodo af eigin vallarhelmingi og á Dodo, sem hristi af sér varnarmann og lék á markvörð Cremonese áður en hann skoraði.

David Okereke minnkaði muninn átta mínútum síðar áður en Albert gerði út um leikinn með góðu skoti eftir skemmtilegt spil í teignum.

Þetta var fimmta deildarmark Alberts á tímabilinu og þá er hann kominn með fjórar stoðsendingar. Hann var þá að skora annan leikinn í röð, en hann skoraði annað mark Fiorentina í 2-1 sigrinum á Rakov í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar á dögunum.

Sannfærandi hjá Fiorentina sem er komið upp í 16. sæti með 28 stig, fjórum stigum fyrir ofan Cremonese sem er í fallsæti.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 29 22 2 5 65 23 +42 68
2 Milan 29 17 9 3 44 21 +23 60
3 Napoli 29 18 5 6 45 30 +15 59
4 Como 29 15 9 5 48 22 +26 54
5 Juventus 29 15 8 6 51 28 +23 53
6 Roma 29 16 3 10 39 23 +16 51
7 Atalanta 29 12 11 6 40 27 +13 47
8 Bologna 29 12 6 11 38 34 +4 42
9 Lazio 29 10 10 9 29 28 +1 40
10 Sassuolo 29 11 5 13 35 39 -4 38
11 Udinese 29 10 6 13 33 42 -9 36
12 Parma 29 8 10 11 21 36 -15 34
13 Genoa 29 8 9 12 36 40 -4 33
14 Torino 29 9 6 14 32 50 -18 33
15 Cagliari 29 7 9 13 31 41 -10 30
16 Fiorentina 29 6 10 13 34 43 -9 28
17 Lecce 29 7 6 16 21 39 -18 27
18 Cremonese 29 5 9 15 23 44 -21 24
19 Pisa 29 2 12 15 23 49 -26 18
20 Verona 29 3 9 17 22 51 -29 18
Athugasemdir
banner