„Fyrra tímabilið var auðvitað frábært, þvílíkur uppgangur og við náðum í 111 stig í League One og þar með bættum deildarmetið.“
Alfons og Willum Þór Willumsson voru liðsfélagar hjá Birmingham en eru nú báðir mættir til Hollands.
„Dvölin á Englandi var mikill lærdómur. Það var fullt af hlutum sem efldi mann bæði sem karakter og leikmann.“
Alfons Sampsted skipti í upphafi árs í hollenska liðið Go Ahead Eagles eftir rúmlega eins og hálfs árs dvöl í Englandi hjá Birmingham.
Alfons, sem er 27 ára gamall bakvörður, þekkir hollensku deildina vel en fyrir dvölina í Englandi var hann á mála hjá Twente. Hann segir tímann á Englandi hafa verið lærdómsríkann þrátt fyrir takmarkaðan spiltíma.
Fótbolti.net sló á þráðinn til Alfons fyrir helgi og ræddi við hann um vistaskiptin. Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að neðan og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Alfons, sem er 27 ára gamall bakvörður, þekkir hollensku deildina vel en fyrir dvölina í Englandi var hann á mála hjá Twente. Hann segir tímann á Englandi hafa verið lærdómsríkann þrátt fyrir takmarkaðan spiltíma.
Fótbolti.net sló á þráðinn til Alfons fyrir helgi og ræddi við hann um vistaskiptin. Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að neðan og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Endurkoman til Hollands
„Þetta er flott, maður er búinn að koma sér vel fyrir. Þetta er frekar nálægt Twente þar sem ég var áður og ég þekki ágætlega til. Ég var nokkuð fljótur að koma mér inn í þetta. Það er alltaf auðveldara þegar þú ert á kunnuglegum slóðum. Mér líður vel og mér hefur liðið þannig frá fyrstu mínútu.“
Alfons hefur spilað sjö leiki með liðinu frá því að hann kom og hefur hann verið í byrjunarliðinu í öllum þeirra.
„Ég er búinn að fá mikið af mínútum undanfarið. Það er auðvitað mjög fínt og eitthvað sem ég vildi. Það var svolítið erfitt gengi hjá liðinu til að byrja með. En við náðum að tengja tvo sigra í röð og þá losnaði aðeins um okkur, við það minnkaði aðeins pressan og menn gátu farið að spila aðeins meiri fótbolta.
Þegar ég kem inn þá voru þeir að klára þessa Evrópuvegferð sem þeir voru á. Liðið var að spila nánast þrjá leiki í viku og það var aðeins of mikið fyrir liðið. Við vorum ekki alveg með hópinn í að spila svona marga leiki á stuttum tíma. Úrslitin voru ekki alveg til staðar. En maður finnur það alveg núna að þegar við spilum einn leik í viku og við fáum betri endurheimt þá getum við ýtt okkur aðeins upp á við sem er markmið liðsins.“
Deild að hans skapi
Alfons þekkir deildina vel en eins og áður sagði var hann á mála hjá Twente áður en hann var fenginn til Birmingham í Englandi.
„Maður þekkir deildina vel, hafandi spilað í henni í eitt og hálft ár með Twente og tala tungumálið líka. Það er létt að líða eins og heima hjá sér þegar maður veit út í hvað maður gengur.
Hollenski boltinn er skemmtilegur. Ég hugsa að flestir sem hafa fylgst með honum viti hvað ég meina þegar ég segi að hann er mikið fyrir augað. Það er mikið lagt upp úr því að það eigi að vera gaman að horfa á hann. Flestir vilja spila góðan bolta, pressa og mikil orka. Þetta er fullt af hlutum sem ég kann mjög vel við.“
Lærdómsríkur tími í Englandi
„Þetta var mikill lærdómur, fyrsta sinn fyrir mig í enskum fótbolta sem er allt öðruvísi en sá hollenski. Fyrra tímabilið var auðvitað frábært, þvílíkur uppgangur og náðum í 111 stig í League One og þar með bættum deildarmetið.
Það voru allir mjög peppaðir að sjá hvernig við myndum yfirfæra þetta yfir í Championship deildina en það var hægara sagt en gert. Championship er virkilega erfið deild og það er voða sjaldan sem þú mætir lélegum liðum. Þetta er mjög úrslitamiðuð deild og erfitt að brjóta andstæðingana á bak aftur.
Þetta var mikill lærdómur fyrir liðið og mig sjálfan. Ég fékk þarna eiginlega mín fyrstu meiðsli á ferlinum sem ég lærði að díla við. Það var fullt af hlutum sem efldi mann bæði sem karakter og leikmann.“
Alfons lék sautján leiki í deildinni á fyrra tímabilinu sínu í Englandi en hann var frá um skeið vegna meiðsla. Á síðara tímabilinu voru tækifærin af skornum skammti og lék hann aðeins sex deildarleiki áður en hann hélt til Hollands.
„Það sem gekk kannski ekki upp var að þjálfarinn var kominn með sitt lið og ég var ekki fyrsti kostur inn. Stundum er það þannig að maður þarf að berjast fyrir stöðunni sinni og einhver annar situr í raun og veru á undan. Ég fékk nokkra leiki áður en ég fer aftur til Hollands. Fyrir mitt leyti langaði mig að sýna að ég gæti spilað í þessari deild og fékk það undir lokin og ég náði að sýna sjálfum mér að ég væri með þetta 'level' í mér.“
Enginn bolli með Brady
NFL goðsögnin Tom Brady er minnihlutaeigandi í Birmingham. Alfons var spurður út í hvort að hann eigi einhver kynni af Brady, sem er af mörgum talinn besti leikstjórnandi í sögu NFL.
„Já, hann mætti þarna nokkrum sinni. Hann kom á úrslitaleikinn í neðri deildar bikarnum og kíkti af og til á æfingasvæðið. Ég get ekki sagt að ég hafi sest niður með honum yfir kaffibolla. En hann kom þarna og tók í hendina á mönnum og sagði nokkur vel valin orð. Hann var ekkert dags daglega í hlutunum en lét sjá sig af og til. Það var gaman að því.“
Athugasemdir

