PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
Stefán Þór: Ofboðslega skrýtinn leikur
Jóhann Birnir ekki rólegur fyrr en á 92. mínútu
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
Maggi: Versta varnarframmistaða sem ég hef séð í mörg ár
Freyja Stefáns: Gott að vera strax búin að stimpla sig inn
Einar Guðna: Væri örugglega vælandi yfir þessu ef við hefðum ekki unnið
Skoraði í sínum 100. leik - „Við hefðum átt að vera löngu búnar að klára þetta“
„Óli Jó sagði það allaveganna alltaf, erfitt að byrja á nýliðum"
Óskar Smári: Þessi leikur frábært sýnisdæmi fyrir þessa deild
„Mjög jákvætt að fá Bryndísi inn“
„Það hefði verið ótrúlega gott að hafa hana“
Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin
Valdimar framlengir í Njarðvík (Staðfest)
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
   lau 04. apríl 2026 21:32
Hilmar Jökull Stefánsson
KA menn klöppuðu hreindýrum fyrir 0-5 sigurinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, mætti eldhress í viðtal eftir 0-5 sigur sinna manna á Hetti í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla sem fram fór á Rafey-vellinum í Fellabæ í dag.

„Tilfinningin er bara góð. Ég var mjög ánægður með leikinn og mér fannst Höttur flottir. Þeir komu inn með alvöru baráttu, voru fastir fyrir í návígum og alvöru hugarfar í þeim. Ég var mjög ánægður með það, við fengum góðan leik og skoruðum 5 mörk þannig ég er mjög ánægður.“


Lestu um leikinn: Höttur 0 -  5 KA

Höttur fékk ekki að sjá mikið af boltanum í leiknum og KA hélt vel í boltann meira og minna allan leikinn, en var Haddi farinn að hafa áhyggjur um miðbik fyrri hálfleiks að hans menn væru ekki að ná að opna Hött?

„Nei þetta er oft svona þegar lið úr neðri deildum mæta og eru þéttir og það eru allir að hlaupa og berjast þá er oft erfitt að opna þá en maður veit að þegar líður á leikinn þá eru meiri líkur á að leikurinn opnist. Það var gott að fá fyrsta markið. Við náðum að komast í 1 á 1 stöðu, Diego gerir vel þar og fær vítið. Nei nei ég var ekki áhyggjurfullur ég var bara ánægður með mótspyrnuna sem við fengum.“

Hallgrímur Mar og Sveinn Margeir, sem að öðrum ólöstuðum ættu að teljast tveir af bestu mönnum liðsins byrjuðu á bekknum. Er það eitthvað áhyggjuefni eða bara hvíla?

„Nei engin áhyggjuefni bara að nota hópinn. Þeir komu báðir inn með flott hugarfar, skoruðu báðir. Sveinn Margeir var aðeins búinn að vera að finna til í hnénu og var í einni sprautu þannig nú eru þær búnar og hann kom flott inn hjá okkur í dag.“

Haddi talaði einnig um góðan móral í hópnum, hreindýraklapp, lasagna og svo sagði hann undirrituðum að loknu viðtali að hann hefði verið mjög ánægður með það KA fólk sem fylgdi liðinu að norðan og vildi þakka því fyrir stuðninginn í dag, sérstaklega þar sem strákarnir gleymdu að klappa fyrir þeim.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner
banner