Bodö/Glimt er komið með annan fótinn í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir öruggan 3-0 sigur á Sporting í fyrri leik liðanna í Noregi. Seinni viðureign liðanna fer fram í Lissabon í kvöld.
Fótbolti.net ræddi við Alfons Sampsted í síðustu viku um ævintýri norska liðsins í Meistaradeildinni. Alfons lék með Bodö/Glimt á árunum 2020 til 2022 og spilaði yfir 130 leiki fyrir félagið.
Fótbolti.net ræddi við Alfons Sampsted í síðustu viku um ævintýri norska liðsins í Meistaradeildinni. Alfons lék með Bodö/Glimt á árunum 2020 til 2022 og spilaði yfir 130 leiki fyrir félagið.
Svaramaður markvarðarins
„Ég fylgist vel með þeim og spjalla ennþá við nokkra leikmenn, nánast daglega við markvörðinn Nikita (Haikin). Við höldumst vel í hendur og ég var meira að segja svaramaður í brúðkaupinu hans. Ég er enn vel tengdur þarna inni og fæ mikla innsýn á bakvið tjöldin.
Það er svo gaman að fylgjast með þessu, maður sér enn gamla Bodö/Glimt frá því að ég var þarna. Nema að þeir hafa tekið skref fram á við og orðið ennþá betri. Eftir þennan 3-0 sigur síðast hugsar maður að leikurinn úti í Lissabon ætti ekki að vera alltof stór áskorun. Það verður gaman að sjá umferðina þar á eftir.“
Greinileg ummerki
Bjóstu við að liðið yrði að þessu skrímsli sem það er í dag?
„Þegar ég er þarna unnum við alveg Roma tvisvar á heimavelli og áttum svona hörku frammistöður af og til. En það sem við erum að sjá núna eru hörku frammistöður líka á útivelli. Það voru greinileg ummerki um að þeir gætu orðið algjört 'powerhouse'. Þeir eru búnir að láta það raungerast.“
Gervigrasið vissulega kostur
Bodö spilar heimaleiki sína á Aspmyra leikvanginum en á honum er gervigras. Alfons segir það vissulega vera kost að spila á gervigrasi en frammistöður liðsins í ár á útivelli sýnir að það skipti mögulega ekki öllu máli.
„Gervigrasið heima er kostur, ég ætla ekkert að ljúga að því. Maður hefur verið þarna og upplifað hvað það gefur manni auka kraft á móti liðum sem eru óvön því að spila á gervigrasi. En eins og ég segi að gera þetta gegn Atlético Madrid og Inter á útivelli og skila inn alvöru frammistöðum þá er ekki hægt að tala um að þetta sé bara gervigrasinu að þakka.“
Athugasemdir


