Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
   þri 17. mars 2026 07:40
Brynjar Ingi Erluson
Mun funda með dómarasamtökunum í vikunni - „Verið að gera úlfalda úr mýflugu“
Liam Rosenior
Liam Rosenior
Mynd: EPA
Liam Rosenior, stjóri Chelsea, mun funda með PGMOL, dómarasamtökum Englands, í vikunni, en þar mun hann ræða ýmis mál þar á meðal hegðun dómarans, Paul Tierney, í leiknum gegn Newcastle um helgina.

Enski stjórinn var óánægður með Tierney sem stal sviðsljósinu í liðshring Chelsea-manna fyrir leikinn gegn Newcastle.

Hann stóð við miðjuna, þar sem Chelsea hefur tekið liðshringinn í síðustu leikjum og neitaði að færa sig. Því var hann í miðjunni á meðan þeir ræddu málin.

Þetta var eitt af furðulegustu atvikum tímabilsins og mun Rosenior funda með dómarasamtökum Englands í vikunni, en þó ekki bara um þetta eina atvik.

„Nei, ég gerði það ekki. Ég mun funda með þeim í persónu í vikunni sem ég tel best í stöðunni. Það sem ég var að tala um eftir leikinn snerist ekki um liðshringinn heldur um mín sjónarmið á ákveðnum ákvörðunum sem voru teknar í leiknum. Það væri frábært að hitta þá og eiga ítarlegt samtal með þeim.“

„Það er búið að gera úlfalda úr mýflugu varðandi þennan liðshring, svona ef ég á að vera alveg hreinskilinn. Þetta er bara lítill partur af mörgum mjög alvarlegum hlutum sem þarf að ræða, eins og tildæmis stórleikurinn gegn PSG á morgun. En ef ég ræði aftur liðshringinn þá hafa strákarnir alltaf viljað sýna samheldni. Ég held að þeir muni halda áfram að gera þetta, en við viljum stuða eða skapa einhvern usla í kringum okkur. Við munum taka ákvörðun um hvar við munum liðshringinn á vellinum í dag,“
sagði Rosenior.
Athugasemdir
banner
banner