Mark Clattenburg, fyrrum dómari í ensku úrvalsdeildinni, var ósáttur við fyrrum kollega sinn, Paul Tierney, fyrir leik Chelsea og Newcastle United um helgina.
Chelsea hefur gert það að hefð að búa til liðshring í leikjum deildarinnar eftir að Liam Rosenior tók við og hefur það vakið sterk viðbrögð frá andstæðingum þeirra.
Um helgina tóku þeir liðshringinn við miðjuna nema í þetta sinn var Paul Tierney, dómari leiksins, í miðjunni og virtist kunna vel við sig þar.
Þetta þótti allt saman mjög undarlegt en Clattenburg segir Tierney hafa litið hræðilega út í þessu atviki.
„Myndin af Paul Tierney í miðjunni í liðshring Chelsea, horfandi beint í sjónvarpsmyndavélina var ekki bara stórfurðulegt heldur leit þetta hræðilega út fyrir hann sjálfan.“
„Tierney fékk fjölmörg tækifæri til þess að koma sér úr þessari stöðu, en hann leyfði þessu bara að gerast. Líkamstjáningin var á þann veg að hann virtist njóta þess,“ sagði Clattenburg sem benti einnig á það að dómarar eiga venjulega að vera fyrir utan miðjuhringinn í upphafi leiks.
„Ég væri mjög ósáttur og reiður ef ég væri leikmaður Newcastle, að sjá hann í miðjum liðshring hjá Chelsea.“
„Það má vel vera að dómarar deildarinnar séu vanhæfir en þeir eru ekki spilltir. Það að leyfa þessu að gerast getur leitt til ónauðsynlegra ásakana,“ sagði hann enn fremur.
Í myndskeiðinu sést Cole Palmer knúsa Tierney aftan frá sem Clattenburg sagði slíkt ekki hjálpa dómurum og að þetta geti skapað leiðinlega umræðu í garð dómara sem þurfa nú þegar að þola mikla gagnrýni í fótboltaheiminum.
Rosenior, stjóri Chelsea, sagðist vera vonsvikinn með Tierney sem hefði auðveldlega getað forðast þessa stöðu.
Athugasemdir


