Brighton hefði átt að fá vítaspyrnu í 1-0 tapinu gegn Arsenal þann 4. mars. Þetta hefur nefnd á vegum enska sambandsins, sem fer yfir ákvörðun dómara, gefið út.
Brighton var undir eftir að Bukayo Saka kom Arsenal yfir á 9. mínútu og var í leit að jöfnunarmarki í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar liðið hefði átt að fá víti.
Eftir fyrirgjöf frá vinstri reyndi Mats Wieffer hlaup inn í teiginn en var tekinn í jörðina af Gabriel Martinelli. Chris Kavanagh dæmdi ekkert og VAR dómarinn Michael Salisbury brást ekki við.
Fabian Hurzeler, stjóri Brighton, kvartaði í fjórða dómaranum og átti í orðaskiptum við Mikel Arteta, stjóra Arsenal.
Nefndin segir að dæma hefði átt vítaspyrnu, Martinelli var ekki að horfa á boltann og hélt í Weiffer og hindraði hann því í að berjast um boltann.
Engin VAR mistök hafa bitnað á Arsenal
Þetta er í annað sinn á tímabilinu sem Arsenal náði að sleppa við að fá á sig VAR víti í útileik sem liðið vann 1-0. Í desember hefði Everton átt að fá víti gegn Arsenal en Salisbury var einnig í VAR dómgæslunni þá.
Nú hafa verið gerð 18 staðfest VAR mistök á þessu tímabili sem er sami fjöldi og allt tímabilið 2024-25. Engin VAR mistök hafa bitnað á Arsenal.

Í sömu leikviku í byrjun mars hefði Leeds United átt að fá víti í 1-0 tapi gegn Sunderland þegar brotið var á Pascal Struijk.
Jacob Ramsey, leikmaður Newcastle, fékk tvö gul og þar með rautt í 2-1 sigri gegn Manchester United en nefndin hefur gefið út að seinna gula spjaldið, sem hann fékk fyrir meintan leikaraskap, hafi verið röng ákvörðun dómarans.
Athugasemdir