Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
banner
   fös 17. apríl 2026 18:24
Brynjar Ingi Erluson
Besta deildin: Fyrirliðinn tryggði Val fyrsta sigurinn
Valsarar eru komnir með fyrsta sigurinn
Valsarar eru komnir með fyrsta sigurinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Felix skoraði draumamark á 21. mínútu en það dugði skammt
Felix skoraði draumamark á 21. mínútu en það dugði skammt
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Adam Ægir átti frábæran leik hjá Val
Adam Ægir átti frábæran leik hjá Val
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hólmar Örn gerði sigurmark Valsara
Hólmar Örn gerði sigurmark Valsara
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur 2 - 1 ÍBV
0-1 Felix Örn Friðriksson ('21 )
1-1 Lúkas Logi Heimisson ('30 )
2-1 Hólmar Örn Eyjólfsson ('73 )
Lestu um leikinn

Fyrsti sigur Vals er kominn í hús en liðið kom til baka og vann ÍBV, 2-1, í 2. umferð Bestu deildar karla á Hlíðarenda í kvöld. Fyrirliðinn Hólmar Örn Eyjólfsson gerði sigurmark Valsara í síðari hálfleiknum.

Upphafsmínúturnar voru heldur rólegar en á fimmtándu mínútu leiksins kom fyrsta hættulega færið er Adam Ægir Pálsson átti fyrirgjöf frá hægri meðfram grasinu sem Tryggvi Hrafn Haraldsson náði ekki að stýra á markið og rúllaði boltinn rétt framhjá.

Sex mínútum síðar kom óvænt og stórkostlegt mark frá Eyjamönnum er Bjarni Mark Duffield skallaði hornspyrnu út fyrir teiginn á Felix Örn Friðriksson sem skaut frábæru utanfótarskoti meðfram grasinu í boga alveg út við stöng. Frederik Schram hefur líklega séð boltann seint, en skotið var ótrúlega hnitmiðað og fallegt hjá Felix sem var að gera fyrsta mark sitt á tímabilinu.

Valsarar svöruðu markinu mjög vel. Lúkas Logi Heimisson jafnaði metin eftir hálftímaleik og aftur voru fyrirgjafir Adams Ægis að ógna, en hann kom boltanum frá hægri inn á teiginn og af varnarmanni, sem rataði síðan fyrir fætur Lúkasar Loga sem setti boltann á hægri og skoraði örugglega í vinstra hornið.

Nokkrum mínútum síðar var Adam Ægi nálægt því að koma heimamönnum yfir er hann reyndi skot af löngu færi, boltinn af Eyjamanni og ofan á slánna.

Hollendingurinn Myles Veldman var í byrjunarliði Vals í fyrsta sinn og heillaði í vængbakverðinum með frábærum fyrirgjöfum og mikilli orku.

Staðan í hálfleik 1-1 og í þeim síðari tóku Valsmenn hreinlega yfir leikinn.

Dagur Orri Garðarsson kom sér í færi eftir undirbúning Adams en setti boltann framhjá. Áfram héldu Valsarar að hóta. Dagur og Tryggvi komu sér í ljómandi góð færi en fóru illa með stöðuna.

Sigurmarkið lá í loftinu og kom það aðeins nokkrum mínútum síðar er fyrirliðinn Hólmar Örn Eyjólfsson stangaði hornspyrnu Adams í netið. Hólmar laumaði sér á milli varnarmanna og setti boltann í netið. Agalegur varnarleikur hjá Eyjamönnum.

Lúkas Logi gat gengið frá leiknum stundarfjórðungi fyrir leikslok er Tryggvi fann hann við vítateigslínuna en skotið í hliðarnetið.

Eyjamenn fengu færi til þess að jafna leikinn eftir að Valsarar töpuðu boltanum klaufalega á 79. mínútu. Arnar Breki Gunnarsson fékk boltann vinstra megin, hótaði tvisvar skoti áður en hann lét vaða en skotið auðvelt fyrir Frederik í markinu.

Þeir reyndu hvað þeir gátu til þess að bjarga stigi en fundu ekki leiðir í gegnum vörn Vals og lokatölur því 2-1 fyrir Val sem er komið með þrjú stig á meðan Eyjamenn eru aðeins með eitt stig.
Slapp
banner
banner