Vitor Pereira, stjóri Nottingham Forest, segir að liðið átti aldrei möguleika í að keppa við Aston Villa um sæti í úrslitaleik Evrópudeildarinnar og kenndi hann meiðslum um.
Það er alveg rétt að Forest var án margra lykilmanna í kvöld, en frammistaðan var afar döpur og var Villa yfir á öllum sviðum leiksins.
Forest vann fyrri leikinn 1-0 en tapaði 4-0 á Villa Park, aðeins nokkrum dögum eftir að hafa unnið Chelsea 3-0 með varaliðið inn á.
„Til þess að berjast við lið eins og Aston Villa í undanúrslitum þurfum við að hafa alla í ástandi til að spila. Ef þú horfir á bekkinn þá vorum við með þrjá leikmenn því allir hinir voru meiddir. Einu aðalliðsmennirnir á bekknum voru Bakwa, Luca og Yates. Við reyndum með Murillo, en hann var ekki í standi. Það er mjög erfitt að koma hingað án lausna.“
„Að spila gegn Chelsea og koma síðan aftur hingað eftir þrjá daga er ekki mögulegt. Ég er ótrúlega stoltur af stuðningsmönnunum, þeir reyndu að hjálpa okkur á þessu langa ferðalagi, en það var bara ekki möguleiki. Þetta er synd en ég er stoltur af leikmönnunum því þeir reyndu allt,“ sagði Pereira.
Aston Villa fékk vítaspyrnu snemma í síðari hálfleiknum, en Pereira vildi ekki tala sérstaklega um það. Hann vildi þó meina að það hafi hallað aðeins á Forest.
„Ég sá það ekki en ég ætla að segja þér eitt. Þessi dómari var mjög góður dómari, en ekki fyrir okkur. Það voru mörg gul spjöld og brot, og líka brot gegn okkur á meðan hann gleymdi að dæma á brotin hjá Villa. Hann var mjög grimmur en ég vil ekki nota þetta sem afsökun. Við vorum ekki upp á okkar besta til þess að berjast í undanúrslitunum.“
Af hverju gat Forest ekki sýnt sömu ákefð og Villa?
„Aina, Morgan, Sangare, Murillo, Callum og Ndoye voru allir frá. Til þess að ná í hóp þurftum við að setja þrjá meidda leikmenn á bekkinn og fá þrjá úr akademíunni. Að berjast í leik við þessar aðstæður eftir að hafa spilað á mánudag gegn Chelsea er ekki mögulegt. Þess vegna sagði ég að við gátum ekki keppt af alvöru,“ sagði Pereira.


