Austurríski stjórinn Oliver Glasner var himinlifandi með að koma Crystal Palace í úrslit Sambandsdeildarinnar í kvöld, en þetta er fjórða árið í röð sem hann kemur liði í úrslitaleik.
Glasner kom Palace í úrslit enska bikarsins á síðasta ári og vann þá keppni, en hin tvö árin á undan kom hann Eintracht Frankfurt í bikarúrslit í Þýskalandi og í úrslitaleik Evrópudeildarinnar.
Hann segir sigurinn gegn Shakhtar í undanúrslitum Sambandsdeildarinnar vera mikla viðurkenningu fyrir sig persónulega.
„Þetta er fjórði úrslitaleikurinn í röð hjá mér á fjórða tímabilinu. Evrópudeildin, þýski bikarinn, enski bikarinn og núna þessi úrslitaleikur. Þetta er risastórt fyrir mig og það vita það allir sem þekkja mig að þegar ég tilkynnti að ég væri á förum þá lagði ég enn harðar að mér til þess að gera stuðningsmennina stolta. Við höfum þrjár vikur til þess að undirbúa okkur og greina Rayo Vallecano, sem er mjög gott lið.“
„Þetta verður stórkostlegt. Þú vilt alltaf að síðasti leikur þinn hafi einhverja þýðingu og skili jafnvel bikar. Ég lofa því að við munum gefa allt okkar til þess að koma með bikarinn heim á Selhurst,“ sagði Glasner.
Leikmenn fá frí á morgun og vonast til að menn verði komnir með góða orku fyrir leikinn gegn Everton um helgina.
„Ég gaf þeim frí á morgun. Við fengum slæma reynslu eftir fyrri leikinn gegn Shakhtar þar sem við æfðum daginn eftir og þeir voru bara ekki nógu klárir í það. Kannski hjálpar þetta þar sem þeir fá að njóta sín einhvers staðar í Lundúnum.“
„Ég sagði við leikmennina að við ætlum ekki að kasta inn hvíta handklæðinu gegn Everton, en það er líka mikilvægt að þeir njóti sín, hvíli og síðan hittumst við á laugardag og undirbúum okkur fyrir Everton. Þetta snýst um að undirbúa liðið á réttan hátt,“ sagði Glasner.



