Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   fös 17. apríl 2026 19:20
Haraldur Örn Haraldsson
Byrjunarlið Stjörnunnar og FH: Fyrsti byrjunarliðsleikur Kára Kristjáns
Mynd: FH

Stjarnan og FH eigast við í 2. umferð Bestu deildar karla í kvöld, en leikurinn hefst klukkan 20:15 og verður spilaður á Samsung vellinum. Byrjunarliðin hafa verið birt og sjá má þau hér fyrir neðan.


Lestu um leikinn: Stjarnan 1 -  1 FH

Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar gerir tvær breytingar á liði sínu frá 3-2 sigri þeirra fyrir norðan gegn KA. Samúel Kári Friðjónsson sest á bekkinn, en Sindri Þór Ingimarsson er ekki með í hóp. Fyrir þá koma Daníel Finns Matthíasson og Benedikt Warén.

Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH gerir einnig tvær breytingar frá því að þeir gerðu jafntefli við ÍBV í fyrstu umferð. Kári Kristjánsson og Kristján Flóki Finnbogason koma inn í liðið. Gils Gíslason sest á bekkinn en Arnór Borg Guðjohnsen er ekki með í hóp.


Byrjunarlið Stjarnan:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
3. Gustav Kjeldsen
5. Guðmundur Kristjánsson (f)
7. Örvar Eggertsson
8. Jóhann Árni Gunnarsson
11. Birnir Snær Ingason
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
19. Daníel Finns Matthíasson
21. Ibrahim Turay
22. Emil Atlason
23. Benedikt V. Warén

Byrjunarlið FH:
1. Jökull Andrésson (m)
2. Birkir Valur Jónsson
4. Tobias Carlsson
6. Grétar Snær Gunnarsson
7. Kjartan Kári Halldórsson
8. Kári Kristjánsson
9. Kristján Flóki Finnbogason
14. Adolf Daði Birgisson
22. Ísak Óli Ólafsson (f)
23. Tómas Orri Róbertsson
37. Baldur Kári Helgason
Slapp
banner