Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   fös 17. apríl 2026 13:54
Elvar Geir Magnússon
Caicedo: Draumur minn að verða Chelsea goðsögn
Mynd: EPA
Chelsea hefur staðfest að Moises Caicedo hefur skrifað undir nýjan samning við félagið til 2033. Þessi 24 ára leikmaður kom til Chelsea 2023 og hefur spilað 140 leiki fyrir félagið.

„Það er svo margt sem ég vil afreka og ég er mjög hungraður í að bæta mig á hverjum degi. Ég vil vinna fleiri bikara með Chelsea og gefa allt til félagsins og fyrir stuðningsmennina," segir Caicedo.

„Við höfum upplifað margar góðir stundir saman og minn draumur er að verða Chelsea goðsögn. Ég mun leggja eins mikið á mig og hægt er til að það raungerist."

Þessar fregnir koma aðeins mánuði eftir að fyrirliðinn Reece James framlengdi samning sinn við félagið til 2032.



Slapp
banner
banner