Roberto De Zerbi, nýráðinn stjóri Tottenham, fór með leikmannahóp sinn út að borða í vikunni í þeirri von að þétta hópinn fyrir fallbaráttuna.
Tottenham er í harðri fallbaráttu í deildinni nú þegar sex leikir eru eftir af tímabilinu. Liðið hefur ekki enn unnið leik á þessu ári, Tottenham hefur farið í gegnum 14 leiki í röð án sigurs á árinu.
Tottenham tapaði fyrir Sunderland í fyrsta leik Roberto De Zerbi við stjórnvölinn. Ítalinn var spurður út í kvöldverðinn á blaðamannafundi fyrr í dag, en liðið mætir Brighton síðdegis á morgun.

„Ég veit ekki hvort við vinnum leikinn út af þessum kvöldverði. En við borðuðum mjög vel, maturinn var frábær og ef við vinnum er ég tilbúinn að borga fyrir einn kvöldverð í hverri viku.“
Fjölmennur meiðslalisti
Cristian Romero er frá út tímabilið vegna hnémeiðsla og markvörðurinn Guglielmo Vicario er einnig frá.
Þeir Rodrigo Bentancur og Yves Bissouma eru allir að braggast, en sá síðarnefndi er sagður klár í slaginn. James Maddison er byrjaður að æfa á ný eftir krossbandsslit, en De Zerbi vill fara varlega með hann og ekki taka óþarfa áhættu.
Þeir Mohammed Kudus, Wilson Odobert, Ben Davies og Dejan Kulusevski eru jafnframt frá til lengri tíma.