Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   fös 17. apríl 2026 19:10
Brynjar Ingi Erluson
Frábært aukaspyrnumark Júlíusar réði úrslitum - Slæmt tap hjá Daníel Leó
Júlíus Magnússon skoraði beint úr aukaspyrnu
Júlíus Magnússon skoraði beint úr aukaspyrnu
Mynd: Elfsborg
Júlíus Magnússon var hetja Elfsborg og kom liðinu á toppinn með því að gera sigurmarkið í 1-0 sigri á Degerfors í þriðju umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Víkingurinn hefur komið sterkur inn í tímabilið en hann skoraði einnig í fyrstu umferðinni.

Hann skoraði sigurmark Elfsborg á 52. mínútu með marki beint úr aukaspyrnu. Aukaspyrnan var tekin vinstra megin og þrumaði Júlíus boltanum í hægra hornið.



Ari Sigurpálsson kom inn af bekknum hjá Elfsborg þegar hálftími var til leiksloka og hjálpaði sínum mönnum að landa sigrinum, en Elfsborg er nú á toppnum með 7 stig eftir þrjá leiki.

Arnór Sigurðsson og Daníel Tristan Guðjohnsen komu inn á sem varamenn með mínútu millibili þegar um stundarfjórðungur var eftir af venjulegum leiktíma í 1-0 sigri Malmö á Djurgården. Malmö er í öðru sæti með jafnmörg stig og Elfsborg.

Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn í liði Horsens sem vann Ara Leifsson og félaga í Kolding, 1-0, í meistarariðli dönsku B-deildarinnar. Horsens er í næst neðsta sæti riðilsins með 37 stig en Kolding í neðsta með 34 stig. Ari lék allan leikinn með Kolding.

Daníel Leó Grétarsson var þá í vörn SönderjyskE sem steinlá fyrir Bröndby, 6-0, í meistarariðli dönsku úrvalsdeildarinnar. SönderjyskE er á botninum með 38 stig en aðeins þrjú stig eru í Evrópusæti.
Slapp
banner
banner
banner