Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   fös 17. apríl 2026 11:00
Elvar Geir Magnússon
Iraola: Rétti tímapunkturinn til að ljúka þessu ferðalagi
Andoni Iraola.
Andoni Iraola.
Mynd: EPA
Andoni Iraola, stjóri Bournemouth, er með hæsta sigurhlutfall allra stjóra félagsins í ensku úrvalsdeildinni. Tilkynnt var í vikunni að hann hefur ákveðið að láta staðar numið eftir tímabilið og láta af störfum.

„Þetta er ákvörðun sem tók mig langan tíma að taka, þetta hefur ekki verið auðvelt. Ég hef alltaf upplýst félagið um stöðuna og það hefur verið meðvitað um að þetta gæti gerst," segir Iraola.

„Það er ekki einhver ein aðalástæða. Við sem manneskjur fáum leið og á að horfa alltaf á sama andlitið og ég tel að núna eftir þrjú tímabil sé rétta stundin til að ljúka þessu ferðalagi sem hefur verið afskaplega sérstakt fyrir mig."

„Ég skil við félagið á mjög góðum stað og það er vel undirbúið fyrir þetta. Þessi ákvörðun mín snýr ekki að neinu öðru félagi. Ég veit ekki hvað ég vil gera á næsta tímabili. Ég veit ekki hvort ég þjálfi félagslið eða landslið næst. Ég veit ekki hvort ég muni þjálfa í Evrópu. Ég hef ekki hugmynd um hvað mun gerast. Ég veit ekki hvort þið trúið mér en þetta er sannleikurinn."

Bournemouth heimsækir Newcastle í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 37 25 7 5 69 26 +43 82
2 Man City 37 23 9 5 76 33 +43 78
3 Man Utd 37 19 11 7 66 50 +16 68
4 Aston Villa 37 18 8 11 54 48 +6 62
5 Liverpool 37 17 8 12 62 52 +10 59
6 Bournemouth 37 13 17 7 57 53 +4 56
7 Brighton 37 14 11 12 52 43 +9 53
8 Chelsea 37 14 10 13 57 50 +7 52
9 Brentford 37 14 10 13 54 51 +3 52
10 Sunderland 37 13 12 12 40 47 -7 51
11 Newcastle 37 14 7 16 53 53 0 49
12 Everton 37 13 10 14 47 49 -2 49
13 Fulham 37 14 7 16 45 51 -6 49
14 Leeds 37 11 14 12 49 53 -4 47
15 Crystal Palace 37 11 12 14 40 49 -9 45
16 Nott. Forest 37 11 10 16 47 50 -3 43
17 Tottenham 37 9 11 17 47 57 -10 38
18 West Ham 37 9 9 19 43 65 -22 36
19 Burnley 37 4 9 24 37 74 -37 21
20 Wolves 37 3 10 24 26 67 -41 19
Slapp
banner