Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   fös 17. apríl 2026 17:50
Brynjar Ingi Erluson
Man Utd með einn leikfæran miðvörð
Leny Yoro er meiddur
Leny Yoro er meiddur
Mynd: EPA
Ayden Heaven er eini leikfæri miðvörðurinn
Ayden Heaven er eini leikfæri miðvörðurinn
Mynd: EPA
Manchester United fer með vængbrotna vörn inn í leikinn gegn Chelsea á Stamford Bridge á morgun, en aðeins einn miðvörður er leikfær.

Franski miðvörðurinn Leny Yoro verður ekki með vegna meiðsla hann hann varð fyrir í vikunni og ferðaðist ekki með United-mönnum til Lundúna.

Þeir Harry Maguire og Lisandro Martínez eru þá báðir í leikbanni eftir að hafa fengið rauð spjöld. Maguire sá rautt gegn Bournemouth og fékk síðan aukaleik í bann fyrir að rífa kjaft við fjórða dómarann. Þá fékk Martínez rauða spjaldið í tapinu gegn Leeds á dögunum.

Matthijs De Ligt hefur verið að glíma við erfið meiðsli og er ekki klár í slaginn og er aðeins einn miðvörður sem er leikfær fyrir leikinn mikilvæga gegn Chelsea.

Það er hinn 19 ára gamli Ayden Heaven en það er óvíst hver mun spila við hlið hans í vörninni. Luke Shaw hefur áður leyst þetta hlutverk þegar Erik ten Hag var stjóri félagsins og þá kom Manuel Ugarte í þessa stöðu eftir að Martínez var rekinn út af gegn Leeds.

Noussair Mazraoui spilaði áður í þriggja manna vörn undir Ruben Amorim, en ekki prófað það hlutverk í fjögurra manna línu til þessa.

Verður áhugavert að sjá hvernig Carrick mun stilla upp á móti Chelsea, en bæði lið eru í baráttu um að komast í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.
Slapp
banner
banner