Hólmbert Aron Friðjónsson er í Þungavigtinni í dag orðaður við heimkomu til Íslands. Hólmbert er leikmaður Gwangju FC í Suður-Kóreu og spilaði síðast á Íslandi 2017 með Stjörnunni.
Hann er fæddur 1993, uppalinn hjá HK og hefur einnig leikið með Fram og KR hér á landi. Hólmbert hefur spilað sex A-landsleiki og skorað í þeim tvö mörk. Erlendis hefur hann spilað með Celtic, Bröndby, Álasundi, Brescia, Holstein Kiel, Lillström, Preussen Münster og í fyrra gekk hann í raðir Gwangju FC.
Hann er fæddur 1993, uppalinn hjá HK og hefur einnig leikið með Fram og KR hér á landi. Hólmbert hefur spilað sex A-landsleiki og skorað í þeim tvö mörk. Erlendis hefur hann spilað með Celtic, Bröndby, Álasundi, Brescia, Holstein Kiel, Lillström, Preussen Münster og í fyrra gekk hann í raðir Gwangju FC.
„Mér skilst að það sé verulega virkt samtal milli Hólmberts Arons Friðjónssonar og Breiðabliks. Það eigi að landa þeim stóra," segir Kristján Óli Sigurðsson í Þungavigtinni. Kristján Óli er stuðningsmaður Breiðabliks og fyrrum leikmaður liðsins. K
„Eina sem gæti komið í veg fyrir þetta er að félagið hans, sem var að skipta um þjálfara, er í félagaskiptabanni. Gwangju getur ekki fengið inn leikmenn," bætti Kristján Óli við.
„Ef hann kemur þá er það gríðarlegur styrkur fyrir Blikana. Ég man eftir honum þegar við vorum með Valsarana og vorum að spila á móti Stjörnunni. Hann var erfiður viðureignar. Þurfa Blikar ekki að bæta í framherjastöðuna? Manni finnst að þeir þurfi einhverja samkeppni þar ef Kristófer (Ingi Kristinsson) klikkar," sagði Sigurbjörn Hreiðarsson, gestur í þættinum, en hann var aðstoðarþjálfari Vals þegar Hólmbert lék síðast á Íslandi.
„Klárlega (gæti hann hjálpað Breiðabliki að vinna titilinn). Mér líst ekkert á þetta, nenni ekki að Breiðablik vinni þetta mót. Ef þetta verður niðurstaðan yrði þetta fáránlegur liðsstyrkur fyrir Breiðablik. Þeir gætu jafnvel verið með Hólmbert og Kristófer saman uppi á topp. Spurning hvort að Bjössi Hreiðars nái að landa Kristófer á endanum yfir í Val ef Hólmbert kæmi heim," sagði Mikael Nikulásson, stuðningsmaður KR, í þættinum sem hægt er að nálgast hér að neðan.


