Valverde gæti endað á Old Trafford - Man Utd hefur aukinn áhuga á Ederson og Fernandes - Tekur Alonso við Chelsea?
   fös 17. apríl 2026 20:32
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Ótrúlega dýrmætt stig hjá Ísaki og félögum í Köln
Ísak Bergmann byrjaði hjá Köln sem náði í mikilvægt stig á útivelli
Ísak Bergmann byrjaði hjá Köln sem náði í mikilvægt stig á útivelli
Mynd: EPA
St. Pauli 1 - 1 Koln
1-0 Karol Mets ('69 )
1-1 Gian-Luca Waldschmidt ('86 , víti)

Ísak Bergmann Jóhannesson og félagar í Köln náðu í mikilvægt stig í 1-1 jafntefli gegn St. Pauli í 30. umferð þýsku deildarinnar í kvöld.

Þessi leikur var ótrúlega mikilvægur fyrir Köln til þess að sogast ekki í fallbaráttuna á lokasprettinum.

Rúmum tuttugu mínútum fyrir leikslok stefndi allt í að Köln yrði tveimur stigum frá fallsæti er Karol Mets skoraði með góðum skalla og færði sínum mönnum von um að halda sér uppi.

Ísak Bergmann byrjaði á miðsvæðinu hjá Köln en var skipt af velli á 79. mínútu fyrir Gian-Luca Waldschmidt sem átti eftir að reynast mikilvægur því Köln fékk vítaspyrnu nokkrum mínútum fyrir leikslok sem Waldschmidt skoraði úr.

Frábær úrslit fyrir Köln sem er í 12. sæti með 31 stig en St. Pauli með 26 stig í þriðja neðsta sæti deildarinnar.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 33 27 5 1 117 35 +82 86
2 Dortmund 33 21 7 5 68 34 +34 70
3 RB Leipzig 33 20 5 8 65 43 +22 65
4 Stuttgart 33 18 7 8 69 47 +22 61
5 Hoffenheim 33 18 7 8 65 48 +17 61
6 Leverkusen 33 17 7 9 67 46 +21 58
7 Freiburg 33 12 8 13 47 56 -9 44
8 Frankfurt 33 11 10 12 59 63 -4 43
9 Augsburg 33 12 7 14 45 57 -12 43
10 Mainz 33 9 10 14 42 53 -11 37
11 Hamburger 33 9 10 14 39 53 -14 37
12 Union Berlin 33 9 9 15 40 58 -18 36
13 Gladbach 33 8 11 14 38 53 -15 35
14 Köln 33 7 11 15 48 58 -10 32
15 Werder 33 8 8 17 37 58 -21 32
16 Wolfsburg 33 6 8 19 42 68 -26 26
17 Heidenheim 33 6 8 19 41 70 -29 26
18 St. Pauli 33 6 8 19 28 57 -29 26
Slapp
banner
banner