Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   fös 08. maí 2026 07:00
Brynjar Ingi Erluson
4. deild: Skoraði þrennu í átta marka leik - Dramatík í Úlfarsárdal
Pétur Óskarsson skoraði þrennu fyrir Elliða
Pétur Óskarsson skoraði þrennu fyrir Elliða
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Álafoss, Álftanes, Árborg, Elliði og Hafnir unnu öll í 1. umferð 4. deildar karla sem fór fram í gær.

Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson skoraði tvö mörk í 5-1 sigri Álftaness á Hamri. Álftanes komst í þægilega 4-0 forystu í fyrri hálfleiknum áður en Þorgeir Páll Gíslason varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net snemma í seinni hálfleiknum.

Patrik Thor Pétursson rak síðan síðasta smiðshöggið gegn Hamri tuttugu mínútum fyrir leikslok.

Hafnir unnu 1-0 sigur á Úlfunum í Úlfarsárdal. Anton Freyr Hauks Guðlaugsson gerði eina markið undir lok leiks.

Pétur Óskarsson skoraði þrennu og Jóhann Andri Kristjánsson tvö er Elliði vann KFR, 5-3, á meðan Árborg hafði 3-1 sigur gegn Vængjum Júpiters.

Álafoss kom til baka gegn ÍH og vann 2-1 sigur. Staðan var 1-0 í hálfleik fyrir ÍH, en heimamenn í Álafoss skoruðu tvö mörk á þremur mínútum seint í leiknum og unnu frækinn endurkomusigur.

Úrslit og markaskorarar:

Úlfarnir 0 - 1 Hafnir
0-1 Anton Freyr Hauks Guðlaugsson ('89 )

Álftanes 5 - 1 Hamar
1-0 Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson ('10 )
2-0 Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson ('16 )
3-0 Freyþór Hrafn Harðarson ('34 )
4-0 Markús Pálmi Pálmason ('45 )
4-1 Þorgeir Páll Gíslason ('52 , Own goal)
5-1 Patrik Thor Pétursson ('70 )

KFR 3 - 5 Elliði
0-1 Jóhann Andri Kristjánsson ('8 )
0-2 Pétur Óskarsson ('26 )
1-2 Helgi Valur Smárason ('29 )
1-3 Jóhann Andri Kristjánsson ('32 )
2-3 Emil Ásgeir Emilsson ('46 , Own goal)
3-3 Bjarni Þorvaldsson ('70 )
3-4 Pétur Óskarsson ('84 )
3-5 Pétur Óskarsson ('90 )

Vængir Júpiters 1 - 3 Árborg
0-1 Gestur Helgi Snorrason ('9 )
0-2 Aðalgeir Friðriksson ('19 , Own goal)
1-2 Brynjar Lár Bjarnason ('61 )
1-3 Gestur Helgi Snorrason ('70 )

Álafoss 2 - 1 ÍH
0-1 Mikael Kristinn Rúnarsson ('39 )
1-1 Óttar Ögmundsson ('74 )
2-1 Safír Freyr Jónsson ('77 )
4. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Álftanes 3 3 0 0 11 - 4 +7 9
2.    Árborg 3 2 1 0 6 - 1 +5 7
3.    Hamar 3 2 0 1 10 - 8 +2 6
4.    Elliði 3 2 0 1 8 - 6 +2 6
5.    Úlfarnir 3 1 1 1 4 - 3 +1 4
6.    ÍH 3 1 0 2 11 - 8 +3 3
7.    Vængir Júpiters 3 1 0 2 4 - 6 -2 3
8.    Álafoss 3 1 0 2 3 - 7 -4 3
9.    Hafnir 3 1 0 2 4 - 12 -8 3
10.    KFR 3 0 0 3 7 - 13 -6 0
Slapp
banner
banner