Vinicius Jr orðaður við Man City - Bayern vill Gordon - Arsenal, Liverpool og Barcelona hafa áhuga á Barcola
   fös 08. maí 2026 16:08
Fótbolti.net
Brann í bikaúrslitum á morgun - Hittingur á Ölveri
Leikurinn er klukkan 16 á morgun, laugardag
Freyr Alexandersson, þjálfari Brann.
Freyr Alexandersson, þjálfari Brann.
Mynd: EPA
Íslendingaliðið Brann í norska boltanum leikur bikarúrslitaleik gegn Bodö/Glimt í Osló á morgun laugardag en leikurinn hefst klukkan 16 að íslenskum tíma.

Stuðningsmannaklúbbur Brann á Íslandi ætlar að hittast á Ölveri í Glæsibæ og horfa á leikinn.

„Ég nötra af spennu fyrir þessum leik og hvet alla sem hafa áhuga á að horfa á leikinn til að slást í hópinn og fá sér jafnvel nokkra kalda drykki með," segir Valur Gunnarsson, formaður stuðningsmannaklúbbs Brann á Íslandi.

Freyr Alexandersson þjálfar Brann og fjórir íslenskir leikmenn eru hjá félaginu. Jón Dagur Þorsteinsson hefur spilað alla deildarleiki liðsins á tímabilinu, Kristall Máni Ingason er tæpur fyrir leikinn og Sævar Atli Magnússon og Eggert Aron Guðmundsson eru á meiðslalistanum.
Slapp
banner