Sindri Þór Guðmundsson (1997), leikmaður Grindavíkur, verður frá næstu vikurnar vegna meiðsla sem hann varð fyrir í lok síðasta mánaðar.
Sindri var tæklaður í leik gegn Vestra og birti í kjölfarið myndband af brotinu og vakti athygli á því að dómari leiksins, Þórður Þorsteinn, hefði ekki dæmt aukaspyrnu.
Sindri var tæklaður í leik gegn Vestra og birti í kjölfarið myndband af brotinu og vakti athygli á því að dómari leiksins, Þórður Þorsteinn, hefði ekki dæmt aukaspyrnu.
Eftir myndatöku kom í ljós að liðband á utanverðum ökkla rifnaði og segir Sindri við Fótbolta.net að bólgan sé að hverfa en hann verði frá í líklega þrjár vikur til viðbótar.
Á næstu þremur vikum spilar Grindavík sex leiki, fimm deildarleiki og einn bikarleik. Sá fyrsti verður gegn ÍR í Egilshöll í kvöld.
Lengjudeild karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Fylkir | 6 | 5 | 0 | 1 | 11 - 3 | +8 | 15 |
| 2. Afturelding | 6 | 4 | 1 | 1 | 17 - 12 | +5 | 13 |
| 3. HK | 6 | 4 | 0 | 2 | 13 - 9 | +4 | 12 |
| 4. Þróttur R. | 6 | 3 | 1 | 2 | 14 - 9 | +5 | 10 |
| 5. Grótta | 6 | 3 | 0 | 3 | 12 - 14 | -2 | 9 |
| 6. Njarðvík | 6 | 2 | 2 | 2 | 5 - 4 | +1 | 8 |
| 7. Grindavík | 6 | 1 | 4 | 1 | 7 - 7 | 0 | 7 |
| 8. ÍR | 6 | 2 | 1 | 3 | 15 - 16 | -1 | 7 |
| 9. Vestri | 6 | 2 | 1 | 3 | 10 - 15 | -5 | 7 |
| 10. Leiknir R. | 6 | 1 | 3 | 2 | 4 - 9 | -5 | 6 |
| 11. Ægir | 6 | 1 | 1 | 4 | 6 - 9 | -3 | 4 |
| 12. Völsungur | 6 | 0 | 2 | 4 | 2 - 9 | -7 | 2 |


