Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 08. maí 2026 12:56
Elvar Geir Magnússon
Gagnrýnin mun ekki þagna þó Liverpool vinni síðustu þrjá
Arne Slot.
Arne Slot.
Mynd: EPA
Tímabilið hefur verið vonbrigði hjá Liverpool og segir stjórinn Arne Slot að þó liðið muni vinna síðustu þrjá leiki sína þá muni það ekki þagga niður gagnrýnisraddir.

„Þetta tímabil hefur verið þannig að þó við vinnum síðustu þrjá leikina og náum þremur jákvæðum úrslitum þá verða ekki allir jákvæðir yfir því hvernig tímabilið hefur verið," segir Slot.

„Það er mikilvægt að við náum allavega einum sigri yfir línuna til að tryggja Meistaradeildina. Það jákvæða er að það eru mikilvægir leikmenn að snúa til baka og það mun hjálpa okkur."

„Þrír sigrar munu ekki þagga niður gagnrýnisraddir en einbeitingin okkar er á þessum þremur leikjum."

Liverpool, sem er í fjórða sæti, tekur á móti Chelsea í hádegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner