Vinicius Jr orðaður við Man City - Bayern vill Gordon - Arsenal, Liverpool og Barcelona hafa áhuga á Barcola
   fös 08. maí 2026 16:00
Kári Snorrason
Shakira syngur opinbert lag heimsmeistaramótsins
Shakira á Maracana vellinum.
Shakira á Maracana vellinum.
Mynd: Instagram/Shakira
Hin sívinsæla Shakira mun flytja opinbert lag komandi heimsmeistaramóts. Lagið ber heitið Dai Dai.

Shakira þekkir vel til HM laga, enda var hún á bak við Waka Waka fyrir mótið í Suður-Afríku árið 2010. Lagið sló rækilega í gegn og lifir enn góðu lífi hjá tónlistar- og fótboltaunnendum um allan heim.

Að þessu sinni hefur Shakira fengið nígeríska rapparann Burna Boy til liðs við sig.

Lagið kemur út 14. maí en Shakira birti mínútulangt brot úr því á samfélagsmiðlum sínum í gær. Hægt er að hlusta á það hér fyrir neðan.



Slapp
banner
banner