Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   fös 08. maí 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía um helgina - Milan aftur í Meistaradeildina?
AC Milan getur komist í Meistaradeild Evrópu
AC Milan getur komist í Meistaradeild Evrópu
Mynd: EPA
AC Milan gæti boðað endurkomu sína í Meistaradeild Evrópu er liðið fær Atalanta í heimsókn í 36. umferð deildarinnar um helgina.

Milan er í 3. sæti deildarinnar með 67 stig en sigur gegn Atalanta kemur liðinu langleiðina í Meistaradeildina.

Ef Como og Roma tapa stigum og Milan vinnur sinn leik þá mun Milan snúa aftur í Meistaradeildina.

Albert Guðmundsson og félagar í Fiorentina geta formlega bjargað sér frá falli er þeir mæta Genoa. Þeir þurfa aðeins eitt stig. Hann mætir Mikael Agli Ellertssyni, liðsfélaga sínum í íslenska landsliðinu.

Þórir Jóhann Helgason og hans menn í Lecce fá Juventus í heimsókn en þeir geta líka bjargað sér frá falli ef þeir vinna og Cremonese tapar fallbaráttuslagnum gegn Pisa.

Leikir helgarinnar:

Föstudagur:
18:45 Torino - Sassuolo

Laugardagur:
13:00 Cagliari - Udinese
16:00 Lazio - Inter
18:45 Lecce - Juventus

Sunnudagur:
10:30 Verona - Como
13:00 Cremonese - Pisa
13:00 Fiorentina - Genoa
16:00 Parma - Roma
18:45 Milan - Atalanta


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 38 27 6 5 89 35 +54 87
2 Napoli 38 23 7 8 58 36 +22 76
3 Roma 38 23 4 11 59 31 +28 73
4 Como 38 20 11 7 65 29 +36 71
5 Milan 38 20 10 8 53 35 +18 70
6 Juventus 38 19 12 7 61 34 +27 69
7 Atalanta 38 15 14 9 51 36 +15 59
8 Bologna 38 16 8 14 49 46 +3 56
9 Lazio 38 14 12 12 41 40 +1 54
10 Udinese 38 14 8 16 45 48 -3 50
11 Sassuolo 38 14 7 17 46 50 -4 49
12 Parma 38 11 12 15 28 46 -18 45
13 Torino 38 12 9 17 44 63 -19 45
14 Cagliari 38 11 10 17 40 53 -13 43
15 Fiorentina 38 9 15 14 41 50 -9 42
16 Genoa 38 10 11 17 41 51 -10 41
17 Lecce 38 10 8 20 28 50 -22 38
18 Cremonese 38 8 10 20 32 57 -25 34
19 Verona 38 3 12 23 25 61 -36 21
20 Pisa 38 2 12 24 26 71 -45 18
Slapp
banner
banner