Vinicius Jr orðaður við Man City - Bayern vill Gordon - Arsenal, Liverpool og Barcelona hafa áhuga á Barcola
   fös 08. maí 2026 15:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Biðst afsökunar á „barnalegum" ummælum um Arteta
Mynd: EPA
Dan Thomas, þáttarstjórnandi á ESPN hefur beðist afsökunar á ummælum sínum um Mikel Arteta, stjóra Arsenal.

Ummælin lét Thomas falla í beinni útsendingu bandarísku stöðvarinnar frá leik Arsenal og Atletico Madrid á þriðjudagskvöld. Arsenal vann leikinn og er á leið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fyrsta sinn síðan 2006.

Arteta var líflegur á hliðarlínunni og sömu sögu má segja af Diego Simeone, stjóra Atletico.

„Á hvaða tímapunkti, sem þjálfari andstæðinganna, langar þig að lemja Arteta í andlitið? Hversu mikið fer hegðun hans í taugarnar á manni?" sagði Thomas. Honum fannst Arteta ná að ganga enn lengra en Simeone er þekktur fyrir að gera á hliðarlínunni í leikjum Atletico. „Hlaupin hans í lokin. Það hlýtur að vera pirrandi að horfa upp á þetta sem þjálfari andstæðinganna, er það ekki?"

Hann hefur nú beðist afsökunar á ummælunum. „Auðvitað átti þetta ekki að hljóma svona, ég hefði getað orðað þetta mun betur. Ég mun reyna að segja ekki eitthvað svona barnalegt í framtíðinni."

Arteta hefur fengið nokkrar aðvaranir frá dómurum í vetur fyrir að fara úr boðvanginum fyrir framan varamannabekkinn.

Arteta reynir nú að sigla heim Englandsmeistaratitlinum og í kjölfarið mætir liðið hans PSG í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
Slapp
banner
banner
banner