Vinicius Jr orðaður við Man City - Bayern vill Gordon - Arsenal, Liverpool og Barcelona hafa áhuga á Barcola
   fös 08. maí 2026 10:48
Kári Snorrason
Víkingur fær 150 þúsund króna sekt vegna blysa og áfrýjar
Frá leiknum gegn Stjörnunni.
Frá leiknum gegn Stjörnunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kveikt var í blysunum utan vallarsvæðisins.
Kveikt var í blysunum utan vallarsvæðisins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur var sektað um 150.000 krónur vegna blysanotkunar í 1. umferð.
Víkingur var sektað um 150.000 krónur vegna blysanotkunar í 1. umferð.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Víkingur hefur verið sektað um 150.000 krónur fyrir notkun á blysum í leik gegn Stjörnunni í 3. umferð Bestu deildarinnar. Félagið hefur áfrýjað dómnum á forsendum þess að kveikt var á blysunum fyrir utan vallarsvæðið.

Stuðningsmenn Víkings kveiktu í tvígang á blysum fyrir aftan varamannabekkina eftir fyrstu tvö mörk liðsins gegn Stjörnunni.

Félagið var sektað vegna blysanotkunar í stúkunni í fyrstu umferð og áfrýjaði dómnum ekki en í þessu tilfelli var kveikt í blysunum fyrir aftan varamannabekkina.

Sölvi Geir Ottesen sagði í viðtali eftir leik ekki hafa áhyggjur af sektum þar sem kveikt var í blysunum fyrir utan leikvöllinn og gantaðist með að þarna hefðu stuðningsmenn Breiðabliks verið að verki.

Blysin inni á svæði félagsins
Frá úrskurði aga- og úrskurðarnefndar KSÍ:
„Samkvæmt skýrslu eftirlitsmanns kom reykur frá blysum fyrir aftan varamannabekki og þurfti dómari leiksins m.a. að stöðva leik í skamman tíma vegna reyks. Þó ekki hafi verið kveikt á blysum inni á leikvellinum sjálfum þá voru þau inni á svæði félagsins og í mikilli nálægð við leikvöll og öryggissvæði, enda truflaði reykur eðlilegan framgang leiksins að mati dómara.“

„Með vísan til framangreinds telst framkoma áhorfenda, er kveikt var á blysum fyrir aftan varamannabekki, hafa verið vítaverða og hættulega sem m.a. varð til þess að stöðva
þurfti leik um skamman tíma.“


Engin gögn sem sýna að áhorfandi hafi staðið að verki
Í greinagerð Víkings kemur fram að kveikt var í reykblysunum fyrir utan leiksvæðisins og að ekki sé rétt að halda því fram að einn einstaklingur, sem kveikir í blysi fjarri öðru fólki, hafi skapað hættu eða brotið alvarlega af sér.

Þá kemur einnig fram að svæðið sé opið öllum og að engin gögn sýni fram á að viðkomandi hafi verið áhorfandi á leiknum, sem sé skilyrði samkvæmt ákvæði aga- og úrskurðarnefndar. Þá var sýnt fram á að 25 gæslumenn hafi verið á leiknum og yfirlitsmynd af staðsetningu þeirra.

Félagið telur sig því hafa gert það sem hægt var og væntir niðurstöðu áfrýjunardómstóls í næstu viku.
Slapp
banner
banner