Vinicius Jr orðaður við Man City - Bayern vill Gordon - Arsenal, Liverpool og Barcelona hafa áhuga á Barcola
   fös 08. maí 2026 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Messi: Enginn vafi að hann er besti leikmaður nýju kynslóðarinnar
Mynd: EPA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lionel Messi, sem er einn allra besti leikmaður í sögu fótboltans og að mörgum talinn sá besti, segir að Lamine Yamal sé besti leikmaður nýju kynslóðarinnar í fótboltanum sem sé að setja svip sinn á heiminn.

Messi, sem níu sinnum hefur unnið Ballon d'Or verðlaunin, er í dag leikmaður Inter Miami en hann lék lengst af á sínum ferli með Barcelona hvar Yamal spilar í dag.

Yamal er kominn í treyju númer tíu hjá Barcelona en Messi spilaði lengst af í því númeri. Síðustu ár hefur spænski kantmaðurinn mikið verið borinn saman við argentínska snillinginn og talað um að hann muni feta í hans fótspor og verða besti leikmaður heims.

Messi talaði um framtíð fótboltans á viðburði nýlega og lagði blessun sína á Yamal.

„Það er ný kynslóð fótboltamanna sem eru mjög góðir og eiga mörg ár fyrir framan sig, en ef ég þarf að velja einn út af aldri, út af því sem hann hefur þegar gert og út af framtíðinni sem hann gæti átt, þá vel ég Lamine. Það er enginn vafi á því að fyrir mér er hann sá besti af þessari kynslóð," segir Messi.

Yamal varð í 2. sæti í kjörinu á besta fótboltamanni heims á síðasta ári en þá vannn Ousmane Dembele verðlaunin. Yamal verður 19 ára í sumar og hann verður líklega aftur mjög ofarlega í kjörinu seinna á þessu ári.

Barcelona er við það að vinna spænska meistaratitilinn, sem verður þriðji meistaratitill Yamal, og hann mun svo leiða Spán á HM í sumar.
Slapp
banner
banner