Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 08. maí 2026 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Carrick: Gleymi því ekki - 14 ár frá erfiðum degi
Mynd: EPA
Michael Carrick, bráðabirgðastjóri Manchester United, fer með lærisveina sína til Sunderland á morgun. Carrick býst við erfiðum leik á Leikvangi Ljóssins.

Fjórtán ár eru frá því að United fór á leikvanginn lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar og var sekúndum frá því að vinna deildina. Það var Sergio Aguero sem kom í veg fyrir fögnuð United með því að skora sigurmark Manchester City í blálokin á leik City og QPR. Leikmenn United voru búnir að sigra Sunderland 1-0, biðu fregna og fengu svo að finna fyrir því frá stuðningsmönnum Sunderland að City hefði unnið.

„já, ég man eftir því," sagði Carrick sem lék á miðju United í leiknum. „Ég hef ekki gleymt því. Auðvitað var þetta sérstök tilfinning sem við upplifðum eftir leikinn, maður vissi einhvern veginn ekki hvernig landið lá. Það var ekki fyrr en við gengum að enda vallarins og þurftum að eiga við það sem við fengum í okkur. Það er í fortíðinni, en fast í minningunni," sagði Carrick.

Það er ekki möguleiki á slíkum sársauka fyrir United menn á morgun því titilinn er ekki möguleiki og Meistaradeildarsætið er tryggt. Sunderland á hins vegar möguleika á því að komast upp í Evrópusæti með hagstæðum úrslitum í lokaumferðunum þremur.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner