Manchester City vill fá leikmann Real Madrid, Bayern München hefur sett sig í samband við Newcastle og Barcola gæti fært sig um set í sumar. Þetta og ýmislegt fleira í slúðurpakkanum.
Manchester City gæti keypt Vinicius Jr. (25) frá Real Madrid en brasilíski framherjinn á aðeins rúmlega ár eftir af samningi sínum á Bernabeu. (Teamtalk)
Bayern München hefur sett sig í samband við Newcastle United þar sem Þýskalandsmeistararnir hafa áhuga á Anthony Gordon (25) en það skilja 20 milljónir punda á milli í viðræðunum. (Mail)
Franski framherjinn Bradley Barcola (23) gæti yfirgefið Paris St-Germain í sumar en Arsenal, Liverpool og Barcelona hafa áhuga á honum. (Sky Sports Þýskalandi)
Roberto De Zerbi stjóri Tottenham vill nýta ákvæði um að kaupa portúgalska lánsmanninn Joao Palhinha (30) frá Bayern München fyrir 27 milljónir punda. (Mail)
Barcelona vonast til þess að Julian Alvarez (26) þrýsti á að vera seldur frá Atletico Madrid. Katalónska félagið er með 86,5 milljóna punda þak á tilboð í argentínska sóknarmanninn. (Mundo Deportivo)
Serbneski sóknarmaðurinn Dusan Vlahovic (26) verður samningslaus hjá Juventus í sumar og bíður eftir því að fá tilboð frá Barcelona eða Bayern München. (Sportmediaset)
Manchester City er í viðræðum við króatíska varnarmanninn Josko Gvardiol (24) um framlengingu. (Sky Sports)
Brighton, Leeds United og West Ham gætu reynt að fá austurríska varnarmanninn Jannik Schuster (19) frá RB Salzburg en Brentford er nálægt því að landa honum. (Teamtalk)
Everton þarf að stíga upp í tilraunum sínum til að fá franska varnarmanninn Maxime Esteve (23) frá Bayer Leverkusen. (Football Insider)
Þýska félagið Eintracht Frankfurt íhugar að láta stjórann Albert Riera fara en þessi fyrrum vængmaður Liverpool og spænska landsliðsins var ráðinn í janúar. (Sky Sports Þýskalandi)




