Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   fös 08. maí 2026 14:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Verðum að setja pressu á Arsenal"
Guardiola
Guardiola
Mynd: EPA
Doku
Doku
Mynd: EPA
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, segir að liðið sitt verði að svara eftir 3-3 jafnteflið gegn Everton og sigra Brentford á morgun til að halda pressu á Arsenal.

Arenal er með fimm stiga forskot á toppi deildarinnar þegar liðið á þrjá leiki eftir. City á leik til góða en þarf að vinna rest og treysta á að Arsenal tapi stigum til að verða Englandsmeistari.

„Við þurfum að setja pressu á Arsenal með því að vinna okkar leiki," sagði Guardiola á fréttamannafundi.

City mætir Brentford á morgun en Arsenal mætir West Ham svo á sunnudag.

„Það er allt sem við þurfum að gera. Allt sem við getum gert."

Verið ótrúlegur
Á fréttamannafundinum hrósaði Guardiola líka Jeremy Doku sem skoraði tvö mörk í jafnteflinu gegn Everton og hefur skorað fjögur mörk í síðustu fimm leikjum. Alls er belgíski kantmaðurinn kominn með sjö mörk á tímabilinu sem er það mesta sem hann hefur skorað fyrir City.

„Ég er svo ánægður með hann, þetta eru ekki bara mörkin eða stoðsendingarnar, heldur er hann líka að skila vinnu varnarlega. Jeremy hefur verið ótrúlegur á þessu tímabili."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp