Kanadíska stórveldið Toronto FC er að festa kaup á framherjanum Josh Sargent úr röðum Norwich.
Toronto, sem leikur í bandarísku MLS deildinni, borgar 20 milljónir punda fyrir Sargent, sem er á leið í læknisskoðun.
Sargent hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Norwich undanfarin ár og fór fram á sölu þegar Toronto lagði fram tilboð í hann í janúar. Hann neitaði að spila fyrir Norwich eftir að félagið hafnaði tilboði frá Toronto og náðu aðilar loks samkomulagi á dögunum eftir tæplega tvo mánuði af viðræðum.
Sargent er fæddur um aldamótin og á 26 ára afmæli í dag. Hann fagnar því afmælisdeginum dátt þar sem hann fær félagaskiptin sem hann vildi í gegn.
Hann skoraði 8 mörk og gaf 3 stoðsendingar í 24 leikjum á slöku tímabili hjá Norwich sem er óvænt í neðri hluta Championship deildarinnar með 39 stig eftir 32 umferðir, þökk sé fimm sigrum í síðustu sex umferðum.
Á síðustu leiktíð skoraði Sargent 15 sinnum og gaf 5 stoðsendingar í 33 leikjum og er hann þar að auki með 5 mörk í 29 landsleikjum fyrir Bandaríkin.
Sargent var eftirsóttur síðasta sumar en ekkert félagslið var reiðubúið til að borga kaupverðið sem Norwich vildi, 20 milljónir punda.
14.07.2025 20:42
Burnley í harðri baráttu um Josh Sargent
Athugasemdir


