Heimild: DV / 433
Eiður Smári Guðjohnsen er gestur í Doc Zone hjá Dr. Football í kvöld og gaf hann fréttir af syni sínum Andra Lucasi Guðjohnsen sem er ekki í leikmannahópi Blackburn gegn Oxford United.
11.03.2026 20:40
Andri ekki með Blackburn - Yfirgaf leikvanginn á hækjum
Andri meiddist á ökkla í jafntefli gegn Portsmouth um helgina og greinir Eiður Smári frá því að sonur sinn þurfi að fara í aðgerð vegna meiðslanna. Hann tekur fram að aðgerðin geti haldið Andra frá keppni í 8-12 vikur.
„Hann er ekki að spila í dag, verður frá í 8-12 vikur. Fer væntanlega í aðgerð næsta þriðjudag, tímabilið er svolítið búið hjá honum,“ sagði Eiður Smári.
Andri, sem er á sínu fyrsta tímabili á Englandi, var mikilvægur hlekkur í byrjunarliði Blackburn fyrir áramót, hann skoraði 7 mörk í 11 deildarleikjum áður en hann meiddist skömmu fyrir jól. Hann var frá keppni í einn mánuð en hefur ekki fundið taktinn aftur eftir endurkomuna.
Meiðslin þýða að Andri missir af landsleikjum Íslands í mars. Hann verður vonandi klár í slaginn fyrir leikina í júní.
Athugasemdir



