Það er óhætt að segja að Antonin Kinsky, markvörður Tottenham, hafi átt leik í kvöld sem hann vill gleyma sem fyrst. Þetta er leikur sem mun gefa honum martraðir.
Igor Tudor, stjóri Spurs, ákvað að byrja með Kinsky í markinu gegn Atletico Madrid í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar þar sem Guglielmo Vicario hefur verið mjög slakur á tímabilinu.

Þetta var tækifæri fyrir Kinsky að sýna sig og sanna, en í staðinn var hann það lélegur að honum var skipt af velli eftir 17 mínútur þegar staðan var orðin 3-0 fyrir Atletico.
Kinsky hafði þá gert tvö slæm mistök sem kostuðu mörk. „Vá, vá, vá. Ég hef aldrei séð þetta gerast áður á fótboltavelli," sagði Paul Robinson, fyrrum markvörður Tottenham, þegar Kinsky var skipt út af fyrir Vicario.
„Já, þetta var markverðinum að kenna en þetta gjörsamlega eyðileggur sjálfstraustið hjá Kinsky."
Hér fyrir neðan má sjá mörkin.
Athugasemdir