Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
banner
   þri 10. mars 2026 23:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tudor: Þetta var ótrúleg staða
Igor Tudor, stjóri Tottenham.
Igor Tudor, stjóri Tottenham.
Mynd: EPA
„Eftir það sem gerðist þá var þetta röng ákvörðun. En þetta var rétt ákvörðun fyrir leikinn," sagði Igor Tudor, stjóri Tottenham, um þá ákvörðun að byrja með Antonin Kinsky í markinu í Meistaradeildinni í kvöld.

Tottenham tapaði 5-2 gegn Atletico Madrid og Kinsky var kippt af velli eftir 17 mínútur. Hann gerði tvö slæm mistök sem kostuðu mörk.

„Þetta var rétt augnablik. Því miður gerðist það sem gerðist. Ég hef aldrei skipt um markmann áður eftir 20 mínútur."

Tudor var þá spurður út í þá ákvörðun að skipta Kinsky af velli en hann hefur verið gagnrýndur fyrir að gera það. „Ég hef þjálfað í 15 ár og hef aldrei gert þetta áður. Þetta var nauðsynlegt til að vernda hann og liðið. Þetta var ótrúleg staða."

Það hefur gengið hræðilega frá því Tudor tók við Tottenham, fjórir leikir og fjögur töp.

„Það fer allt úrskeiðis. Lítil mistök og við borgum fyrir það. Ég verð að halda áfram að vinna og tala minna. Það er ótrúlega erfitt að útskýra þetta allt saman."

Tudor var spurður hvort hann væri rétti maðurinn í starfið og sagði þá: „Ég hef ekkert að segja um það."
Athugasemdir
banner
banner