Klukkan 17:45 verður fyrri leikur Bayer Leverkusen og Arsenal í Meistaradeildinni. Veðbankar telja Arsenal sigurstranglegasta lið keppninnar.
Þýska félagið grínast skemmtilega á samfélagsmiðlum fyrir leikinn og setti inn mynd þar sem búið var að setja upp skilti við einn af hornfánunum á BayArena.
„Engar hornspyrnur leyfðar“ stendur á skiltinu og við færsluna stendur „Tilraunarinnar virði“ og hlæjandi broskall.
Eins og nær allir lesendur vita hefur Arsenal verið baneitrað úr hornspyrnum og föstum leikatriðum á tímabilinu og þýsku mótherjarnir eru svo sannarlega meðvitaðir um þennan styrkleika toppliðs ensku úrvalsdeildarinnar.

Worth a try ???? pic.twitter.com/0YO7Qg8ERt
— Bayer 04 Leverkusen (@bayer04_en) March 11, 2026
Athugasemdir