Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
   þri 10. mars 2026 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjö leikmenn Atletico á hættusvæði fyrir kvöldið
Marcos Llorente er lykilmaður hjá Atletico.
Marcos Llorente er lykilmaður hjá Atletico.
Mynd: EPA
Atletico Madrid mætir Tottenham í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Spænska liðið Atletico er samkvæmt veðbönkum líklegra liðið fyrir einvígið til þess að fara áfram.

Tottenham endaði í 4. sæti deildarkeppninnar í Meistaradeildinni en liðið er í tómu rugli heima fyrir í úrvalsdeildinni. Liðið hefur ekki unnið í ensku deildinni árið 2026 og er í harðri fallbaráttu. Atletico hefur ekki átt sérstakt tímabil í spænsku úrvasldeildinni, liðið er í 4. sæti deildarinnar en er á leið í úrslitaleik spænska Konungsbikarsins.

Sjö leikmenn Atletico eru á hættusvæði út af gulum spjöldum - eru einu gulu spjaldi frá því að fara í leikbann.

Það eru þeir Pablo Barrios, Thiago Almada, Clement Lenglet, Robin Le Normand, Marcos Llorente, Marc Pubill og Giuliano Simeone. Ef þeir fá spjald í kvöld verða þeir í banni þegar liðin mætast í London í seinni leiknum.

Randal Kolo Muani, Joao Palhinha og Richarlison eru á hættusvæði hjá Tottenham.

Leikur Atletico og Tottenham hefst klukkan 20:00.

Athugasemdir
banner
banner