Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
   mið 11. mars 2026 11:01
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þórsarar þurfa að bíða eftir leikjum ÍBV
ÍBV á eftir að spila þrjá leiki.
ÍBV á eftir að spila þrjá leiki.
Mynd: Aðsend
Niðurstaðan í riðlum 1-3 í Lengjubikarnum er ljós, lokaleikur riðils 2 var spilaður í gær og vann Þór 5-1 sigur á Val í Boganum.

Sigurliðin í riðlunum fara áfram í undanúrslit mótsins og er ljóst að KR vann riðil 3 og Stjarnan er búin að vinna riðil 1 þó að liðið eigi inni lokaleikinn gegn Vestra sem spilaður verður næsta þriðjudag.

KR og Stjarnan munu mætast í undanúrslitum og Þór mun mæta annað hvort Þrótti, Fylki eða ÍBV.

Á vef KSÍ er búið að stilla upp undanúrslitaleik Stjörnunnar og KR og mun sá leikur fara fram á laugardag á Samsungvellinum í Garðabæ og hefjast klukkan 12:00.

Samkvæmt vef KSÍ er áætlað að úrslitaleikur A-deildarinnar fari fram laugardaginn 21. mars.

Í riðli 4 hefur ÍBV einungis spilað tvo leiki, liðið á eftir að mæta Breiðabliki, Þrótti og Fylki. Ef ÍBV vinnur leiki sína gegn Þrótti og Fylki fer liðið í undanúrslitin.

Fylkir og ÍBV mætast á tekk VELLINUM í Árbæ í kvöld. Fresta þurfti heimaleikjum ÍBV gegn Breiðabliki og Þrótti fyrr í vetur og á vef KSÍ er ekki búið að skrá nýja leikdaga á þá leiki. Ef Fylkir vinnur í kvöld þá ætti Þróttur tölfræðilegan möguleika, með því að vinna ÍBV nógu stórt, á því að ná toppsætinu af Fylki. Ef leikurinn í kvöld endar með jafntefli þá geta öll þrjú liðin ennþá unnið riðilinn.

Athugasemdir
banner
banner