Tottenham hefur tapað sex leikjum í röð í fyrsta sinn í sögu félagsins. Fjórir af þessum tapleikjum hafa komið undir stjórn Igor Tudor.
Tudor var á dögunum ráðinn stjóri Spurs en ráðningin á honum lítur verr út með hverjum deginum. Eftir 5-2 tap gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni í kvöld er mikið rætt og ritað um það hvort hann verði látinn fara núna strax.
Tudor var á dögunum ráðinn stjóri Spurs en ráðningin á honum lítur verr út með hverjum deginum. Eftir 5-2 tap gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni í kvöld er mikið rætt og ritað um það hvort hann verði látinn fara núna strax.
Jamie O'Hara, fyrrum miðjumanni Tottenham, er alls ekki skemmt og lét hann gamminn geysa á TalkSPORT í kvöld.
„Ég skammast mín að vera stuðningsmaður Tottenham og ég skammast mín að tengjast þessu félagi. Þetta er til háborinnar skammar. Stjórinn er svikahrappur og hann þarf að fara. Þeir hefðu átt að reka hann í hálfleik," sagði O'Hara á meðan leiknum stóð.
O'Hara gagnrýndi þá Antonin Kinsky sem átti hörmulegan leik í marki Spurs og sagði að Micky van de Ven hefði átt að fá rautt spjald.
„Ég trúi ekki að ég hafi horft á þetta rusl. Ég gæti staðið mig betur að stjórna þessu liði. Leikmennirnir vilja ekki vera þarna og þeir vilja ekki spila fyrir þennan stjóra. Þetta félag er búið að vera og það mun falla úr ensku úrvalsdeildinni."
Hér fyrir neðan má sjá brjálaðan O'Hara.
Spurs fan Jamie O'Hara is NOT happy with Tottenham Hotspur and Igor Tudor… pic.twitter.com/tUFMqPRcWD
— george (@StokeyyG2) March 10, 2026
Athugasemdir

