Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
   mið 11. mars 2026 14:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meistaraspáin - Íhugar að skipta sjálfum sér inn á
Arsenal mætir Bayer Leverkusen.
Arsenal mætir Bayer Leverkusen.
Mynd: EPA
Gylfi Tryggvason.
Gylfi Tryggvason.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Óskar Smári Haraldsson.
Óskar Smári Haraldsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Pep Guardiola og lærisveinar hans mæta Real Madrid.
Pep Guardiola og lærisveinar hans mæta Real Madrid.
Mynd: EPA
Haraldur Örn spáir fyrir Fótbolta.net að þessu sinni.
Haraldur Örn spáir fyrir Fótbolta.net að þessu sinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í kvöld halda 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar áfram með fjórum áhugaverðum leikjum.

Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna, og Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur í sömu deild. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.

Gylfi Tryggvason
Bayer Leverkusen 0 - 2 Arsenal
Besta lið Evrópu að spila í dag. Ætli hvert einasta mannsbarn á jörðinni spái þessu ekki 0-2? Þetta er algjör 0-2 leikur. Drepleiðinlegur leikur að vísu, en árangur spyr ekki um skemmtanagildi.

Bodö/Glimt 1 - 2 Sporting
Nú eru Bodö/Glimt komnir í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar og flestir Norðurlandabúar farnir að hrífast með þessari veislu sem er í gangi. Á endanum hlýtur eitt lið að geta mætt þangað og unnið einn helvítis fótboltaleik. Ég trúi bara ekki að eitthvað kósý teppi geti haft svona mikið að segja. Sporting hljóta að vinna þennan leik.

PSG 3 - 1 Chelsea
Liam Rosenior kemur með einhverja þvælu, lætur menn hita upp í heitum potti út á velli eða eitthvað. Cole Palmer tognar á 3. mínútu. Reece James tognar á 7. mínútu. Róðurinn þyngist. Kvaratskhelia heldur uppteknum hætti í úrslitakeppninni og verður maður leiksins.

Real Madrid 1 - 2 Man City
Semenyo hægeldar Trent í þessum leik. Arbeloa íhugar að skipta sjálfum sér inn á, svo slæmt verður það. City menn líta vel út þessa stundina og þeir ná upp magnaðri frammistöðu og kæfa Real Madrid á þeirra eigin heimavelli.

Óskar Smári Haraldsson
Bayer Leverkusen 1 - 1 Arsenal
Jafntefli í lokuðum og leiðinlegum leik.

Bodö/Glimt 0 - 2 Sporting
Fjandinn hafi það, nú hlýtur blaðran að springa. Bodö búnir að vera frábærir og eflaust ánægðir með dráttinn. Portúgalinn hins vegar með allt öðruvísi mentality en Ítalinn og því klárar Sporting þessa viðureign.

PSG 2 - 1 Chelsea
Annar af tveimur stórleikjunum. PSG klára þetta í jöfnum og skemmtilegum leik.

Real Madrid 2 - 2 Man City
Stórleikur umferðarinnar, 2-2 og Pep mun tala í fyrirsögnum eftir leikinn.

Fótbolti.net - Haraldur Örn Haraldsson
Bayer Leverkusen 0 - 2 Arsenal
Byrjum kvöldið á að reyna að halda okkur vakandi. Arsenal heldur boltanum en gerir lítið með hann en maður rumskar við og við þegar Leverkusen sækir hratt en klúðrar fínum færum. Arsenal setur eitt mark úr föstu leikatriði í fyrri hálfleik og þegar Leverkusen sendir fleiri menn fram seint í leiknum skorar Arsenal eitt á breikinu.

Bodö/Glimt 2 - 1 Sporting
Norðmennirnir á gervigrasinu halda áfram sínu skriði með góð úrslit heima. Valsarinn Kasper Hogh hendir í tvö og þakkar fyrir gott uppeldi í Hlíðarenda í viðtalinu eftir leik. Ungstirnið Geovany Quenda setur eitt seint í leiknum með einhverjum sturluðum töktum.

PSG 0 - 2 Chelsea
Chelsea er með svarta beltið í að vinna gegn PSG eins og þeir sýndu í Bandaríkjunum í sumar. Liam Rosenior er einnig með frekar góð tök á þeim þar sem hann mætti þeim þrisvar sem stjóri Strasbourg. Vann þá einu sinni, gerði jafntefli einu sinni og tapaði einu sinni. Það verður að teljast nokkuð gott. Joao Pedro heldur áfram að raða inn mörkunum og setur fyrsta markið. Garnacho setur svo seinna þar sem það hefur verið gríðarlegur stígandi í hans leik undanfarið.

Real Madrid 0 - 3 Man City
Þetta Real lið er í tómu brasi, og enginn Mbappe heldur. City á eftir að rúlla yfir þá og það er í raun bara spurning hvað þeir klára færin sín vel. Haaland verður á skotskónum og skorar þessi þrjú en þetta hefði getað orðið stærra ef aðrir hefðu verið jafn klínískir.

Staðan í heildarkeppninni:
Óskar Smári - 14
Fótbolti.net - 13
Gylfi Tryggva - 11
Athugasemdir
banner
banner