Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
   þri 10. mars 2026 20:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Æfingaleikur: Breiðablik skellti HK á Kópavogsvelli
Kristófer Ingi með tvennu í dag.
Kristófer Ingi með tvennu í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Yeoman skoraði eitt.
Andri Yeoman skoraði eitt.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Breiðablik 7 - 0 HK
Mörk Breiðabliks: Kristófer Ingi Kristinsson (2), Ágúst Orri Þorsteinsson, Andri Rafn Yeoman, Gunnleifur Orri Gunnleifsson (víti), Birkir Þorsteinsson og Maríus Waren.

Breiðablik tók á móti HK í nágrannaslag í dag, um æfingaleik á Kópavogsvelli var að ræða.

Breiðablik vann stórsigur og voru Blikar í raun búnir að tryggja sér sigurinn í hálfleik þegar staðan var orðin 4-0. Kristófer Ingi Kristinsson, sem sterklega hefur verið orðaður við Val, skoraði tvö mörk, landsliðsmaðurinn Ágúst Orri Þorsteinsson skoraði eitt og reynsluboltinn Andri Yeoman sömuleiðis.

Byrjunarlið Breiðabliks:
Anton Ari; Óli Valur, Viktor Örn, Ívar, Aron Bjarnason; Andri, Höskuldur, Gabríel Snær; Ágúst Orri, Kristófer, Jónatan Dagur.

HK var ekki með sitt allra sterkasta lið, en þó nokkuð sterkt og því koma lokatölur á óvart. HK lék vel framan af seinni hálfleik, fékk vítaspyrnu í stöðunni 4-0 en sú spyrna fór forgörðum.

Á lokakafla seinni hálfleiks voru það svo yngri leikmennirnir sem bættu við mörkum fyrir Blikana. Gunnleifur Orri Gunnleifsson (2008), sonur markmannsins Gunnleifs Vignis Gunnleifssonar, skoraði úr vítaspyrnu, Birkir Þorsteinsson (2009) skoraði eitt og Maríus Warén (2008), yngri bróðir Benedikts Warén, skoraði einnig.

Breiðablik er að undirbúa sig fyrir Bestu deildina sem hefst eftir mánuð. Liðið mætir Íslandsmeisturum Víkings eftir akkúrat mánuð. HK er í Lengjudeildinni og spilar sinn fyrsta leik í deildinni í lok apríl.

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner