Joey Barton hefur verið handtekinn grunaður um líkamsárás nærri golfvelli í Liverpool.
Atvikið átti sér stað á síðasta sunnudag, skammt frá Huyton and Prescot golfklúbbnum sem er í Liverpool. Lögregla mætti á staðinn og fann mann með áverka á andliti og rifbeinum.
Atvikið átti sér stað á síðasta sunnudag, skammt frá Huyton and Prescot golfklúbbnum sem er í Liverpool. Lögregla mætti á staðinn og fann mann með áverka á andliti og rifbeinum.
Samkvæmt lögreglu eru tveir menn báðir í haldi lögreglu og grunaðir um að hafa staðið þar að verki.
Enskir fjölmiðlar segja Joey Barton annan mannanna. Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á sjúkrahús til frekari skoðunar.
Barton hefur oft áður komist í kast við lögin en hann var sakfelldur á síðasta ári fyrir að ráðast á eiginkonu sína. Þá fékk hann einnig skilorðsbundinn dóm fyrir óviðeigandi ummæli á samfélagsmiðlinum X á síðasta ári.
Athugasemdir

