Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
   þri 10. mars 2026 23:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mjólkurbikarinn: Framlengt í fyrsta leik ársins
Úlfarnir eru hressir.
Úlfarnir eru hressir.
Mynd: Aðsend
Úlfarnir 4 - 2 Hamar
0-1 Brynjólfur Þór Eyþórsson ('67 )
1-1 Anton Hrafn Hallgrímsson ('89 )
2-1 Tristan Ásgeir Símonarson ('99 )
3-1 Tristan Ásgeir Símonarson ('112 )
4-1 Börkur Þorri Þorleifsson ('113 )
4-2 Ísak Leó Guðmundsson ('115 )

Fyrsti leikur ársins í Mjólkurbikar karla fór fram í kvöld þegar Úlfarnir mættu Hamri úr Hveragerði.

Staðan var markalaus í hálfleik en um miðbik seinni hálfleiks skoraði Brynjólfur Þór Eyþórsson og kom gestunum í forystu.

Lengi vel stefndi í að það yrði sigurmark leiksins en Anton Hrafn Hallgrímsson jafnaði á 89. mínútu og sá til þess að leikurinn færi í framlengingu.

Í framlengingunni voru Úlfarnir sterkari og báru sigur úr býtum, 4-2. Tristan Ásgeir Símonarson (2009) skoraði tvennu í framlengingunni. Úlfarnir eru því fyrsta liðið til að komast áfram úr 1. umferð Mjólkurbikarsins.
Athugasemdir
banner
banner