Davide Ancelotti hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari brasilíska landsliðsins á nýjan leik.
Þar mun hann aðstoða föður sinn, Carlo, en þeir hafa oft áður unnið saman.
Þar mun hann aðstoða föður sinn, Carlo, en þeir hafa oft áður unnið saman.
Davide hætti sem aðstoðarþjálfari föður síns í fyrra þar sem hann gerðist aðalþjálfari Botafogo í Brasilíu. Hann entist hins vegar ekki lengi í því starfi, var rekinn í desember síðastliðnum.
L'Équipe í Frakklandi segir svo frá því núna að David verði aftur aðstoðarþjálfari föður síns og verði honum til halds og trausts á HM síðar á þessu ári.
Davide, sem er 36 ára, hefur verið aðstoðarþjálfari föður síns hjá Bayern München, Napoli, Everton og Real Madrid.
Athugasemdir



