Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
   mið 11. mars 2026 15:30
Elvar Geir Magnússon
Miðvikudagsmenn gætu þurft að byrja með 15 stig í mínus í C-deildinni
Mynd: Sheffield Wednesday
Sheffield Wednesday gæti byrjað næsta tímabil í C-deildinni með -15 stig ef kaup bandaríska fjárfestingafélagsins Arise Capital Partners ganga í gegn.

Stjórnendur Wednesday eru með bandarísku fjárfestana efsta á blaði og viðræður eru í gangi. Tilboðið uppfyllir hinsvegar ekki skilyrði ensku deildarinnar.

Dejphon Chansiri, fyrrum eigandi félagsins, lánaði því í heildina 60 milljónir punda úr eigin vasa í eigendatíð sinni. Nýir eigendur þyrftu að greiða honum a.m.k. 15 milljónir til baka til að forðast stigafrádrátt.

Í síðasta mánuði var félagið við það að enda í höndum James Bord, fyrrum atvinnumanns í póker, en hans hópur hætti við eftir að verðmæti félagsins hrapaði.

Sheffield Wednesday hefur verið í greiðslustöðvun síðan í október og 18 stig dregin af því. Liðið féll formlega úr Championship-deildinni í síðasta mánuði en liðið er langneðst með -6 stig.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 36 22 8 6 74 38 +36 74
2 Middlesbrough 36 20 9 7 58 35 +23 69
3 Millwall 37 20 8 9 51 41 +10 68
4 Ipswich Town 36 18 11 7 64 38 +26 65
5 Hull City 37 19 6 12 59 53 +6 63
6 Wrexham 36 15 12 9 55 47 +8 57
7 Derby County 37 15 9 13 54 48 +6 54
8 Southampton 35 14 11 10 57 46 +11 53
9 Watford 36 13 13 10 46 42 +4 52
10 Swansea 37 15 7 15 44 44 0 52
11 Bristol City 37 14 8 15 48 48 0 50
12 Sheffield Utd 36 15 4 17 51 49 +2 49
13 Birmingham 36 13 10 13 46 47 -1 49
14 Preston NE 36 12 13 11 42 43 -1 49
15 Stoke City 37 13 9 15 42 39 +3 48
16 QPR 36 13 8 15 46 58 -12 47
17 Norwich 35 13 6 16 47 44 +3 45
18 Charlton Athletic 36 11 11 14 34 44 -10 44
19 Portsmouth 36 10 10 16 36 47 -11 40
20 Blackburn 36 10 9 17 34 47 -13 39
21 Leicester 37 11 11 15 50 57 -7 38
22 West Brom 36 9 9 18 35 53 -18 36
23 Oxford United 36 8 11 17 34 48 -14 35
24 Sheff Wed 37 1 9 27 23 74 -51 -6
Athugasemdir
banner