Liverpool þurfti að sætta sig við tap gegn Galatasaray í Meistaradeildinni í kvöld. Þetta var fyrri leikur liðanna í 16-liða úrslitunum og fór hann fram í Tyrklandi.
Liverpool skoraði mark í seinni hálfleiknum sem var dæmt af vegna þess að Ibrahima Konate fékk boltann í höndina.
Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, var ekki sáttur með dóminn þar sem honum fannst á sér brotið í aðdragandanum.
Það er alveg vel hægt að skilja Van Dijk en markið var dæmt af og fékk ekki að standa. Galatasaray fékk aukaspyrnu og leikurinn hélt áfram.
Með því að smella hér er hægt að sjá myndband af markinu.
Athugasemdir

